GUÐLAUGUR ÞÓ !

 

falki_826539

 

Þetta mun vera hið nýja flokksmerki Sjálfgræðiflokksins.

Hvað eru fimmtíu og fimm milljónir milli vina?

Þetta er ekkert annað en öfund af hálfu annarra flokka

út í  Sjálfgræðiflokkinn, að  vera  duglegri

og sniðugri til öflunar peninga í skjóðuna sína.

Enginn, já enginn skal voga sér að segja að Sjálfgræðiflokkurinn

sé ekki heiðarlegasti flokkurinn á Íslandi og þó víðar væri leitað.

Heilræðavísa:

Ef þín kólnar íhaldstrú

og ekkert má þig kæta,

tilraun er að reynir þú

"sminka" þig og bæta.


mbl.is Guðlaugur Þór hafði forgöngu um styrkina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Pétur Axelsson

Sé SjáLfstæðisFLokkurinn heiðarlegasti flokkurinn á Íslandi þá sitjum við Íslendingar ekki í súpunni, heldur við erum föst í kviksindi og sökkvum hratt.

Er ekki næsta mál að sjá bókhald Samspillingarinnar.

Axel Pétur Axelsson, 9.4.2009 kl. 14:00

2 Smámynd: Rauða Ljónið

Ef sumir fá ekki það sem þeir vilja eins og 300 þús SILFUR, þurfa þeir þá að hefna sín á þeirri atvinnu starfssemi og rakka hana svo niður eins og Ítalskur stjórnmála maður frá Sikiley.?

 Kryddsíld 31.desember 2007
Steingrímur J.Sigfússon segir:
 
Má ég stjórnandi gera athugasemd við eitt…
 
Það er umgjörð þessa þáttar, það var rætt eftir þáttinn í fyrra að eitt tiltekið stórfyrirtæki væri kosta þáttinn sérstaklega.
Það eru mér mikil vonbrigði að sá háttur sé hafður á áfram.
 
Ég velti því fyrir mér fyrir þáttinn hvort ég ætti að mæta yfir höfðuð í þáttinn við þessar aðstæður. Ég ákvað að rjúfa ekki hefðina og ákvað að mæta.
 
Ég mótmæli því að pólitískir foringjar þessa lands séu boðnir til að gera upp árið pólitískt og rökræða um stjórnmál og eitt tiltekið stórfyrirtæki í landinu reyni að slá eign sinni á þær umræður.

 
Þetta tiltekna stórfyrirtæki er Alcan á Íslandi sem bæði í fyrra og nú í ár kostaði Kryddsíldina.
 
Steingrímur J. Sigfússon formaður VG hikaði hinsvegar ekki við að biðja Alcan á Íslandi um styrk upp á 300 þúsund krónur fyrir alþingiskosningarnar í fyrra.
Hér er á ferðinni ólýsanleg hræsni og enn eitt dæmið um að orð Steingríms J. Sigfússonar eru innantómt gjálfur, dylgur og vitleysa sem enginn maður á að taka mark á.
 
 
Í framhaldi af þessu lak þessi beðni út í miðla Steingrímur hringdi svo í fjölmiðlafulltrúa Alcan og hellti úr skálum reiði sinnar en hann átti enga sök á leka þessu hún kom frá öðrum leiðum.
Við starfsmenn höfum kalla þetta okkar á milli mútur í gríni, en í hvert skipti sem Kryddsíld er flutt og formennaflokkana bjóða þjóðinni gleðilegt nýtt ár fá starfsmenn Alcan skítkast frá Steingrími.

Rauða Ljónið, 9.4.2009 kl. 14:03

3 identicon

Þetta er flott hjá þér Kéli kveðja Helgi Lása

Helgi Sigurlásson (IP-tala skráð) 9.4.2009 kl. 21:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þorkell Rúnar Sigurjónsson

Höfundur

Þorkell Sigurjónsson
Þorkell Sigurjónsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...196_1252211
  • ...056_1245763
  • ...002_1245762
  • ...d_1_1245761
  • ...002_1245245

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 65
  • Frá upphafi: 249489

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband