FURÐULEG VIÐBRÖGÐ BÆJARSTJÓRANS Í EYJUM.

 

412953A

 

Nú þegar ljóst er, að á fjórða þúsund skrifuðu undir mótmæli gegn

byggingu hafnar við Bakkafjöru er ástæða til, að staldra við. 


Það sem vekur hjá mér hvað mesta furðu eru viðbrögð

Elliða bæjarstjóra allra Eyjamanna.


Í gær lætur hann hafa eftir sér,  að þeir sem skrifað hafa undir

listann "ströndum ekki" fari betur, að veifa röngu tré en engu.


Einnig það,


að þeir sem staðið hafa að listanum séu að hræða fólk

með ýmsum aðferðum og nú sem endranær er skrattinn alveg

 feikilega vinsælt veggskraut í þeirra rökum, sagði bæjarstjóri allra

Vestmannaeyinga.

Undirskriftarfólk noti rök sem ekki styðjist við raunveruleikann,

rökin séu mest byggð á tifinningahita og fái fólk til að efast um að

gætt  yrði fyllsta öryggis farþega, sem væntanlega nota ferju

í Bakkafjöru.


Heldur Elliði bæjarstjóri virkilega að þessi framgangsmáti hans

sé til að sameina Vestmannaeyinga um samgöngumál

okkar hér í

Eyjum?


Ég á enga ósk heitari en þá, ef áfram verður haldið því ferli,

að byggð verður höfn við Landeyjarsand,

að þá megi hún verða okkur Eyjamönnum til gæfu

og raunveruleg samgöngubót í framtíðinni.


mbl.is Þrjú þúsund skrifuðu undir gegn Landeyjahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta sýnir bara mann sem kann ekki að tapa, og ætlar með sitt fram hvað sem tautar og raular.  Þess konar menn eru EKKI góðir stjórnendur, það er nokkuð ljóst.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.4.2008 kl. 12:00

2 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Sæll félagi Þorkell. Ég hefði viljað stoppa þetta þetta fer illa af stað,orðið þrætuepli í byrjun,leið Magnúsar held ég að væri sú leið sem væri skásti kostur,nýr Herjólfur og ný stórsópunarhöfn.

Guðjón H Finnbogason, 17.4.2008 kl. 19:44

3 Smámynd: þorvaldur Hermannsson

Keli,Hvað heldur þú að hann Helgi Áss Grétarsson stórmeistari í skák viti um sjómensku,ég efast að hann hafi komið um borð í Bát.Eða Elliði sem hefur norpað inni í hlíjunni allt sitt líf,eða Arnar Sigmunds við þurfum ekki að ræða það,eða virðulegi verslunarmaðurin á Kletti sem hefur verið innanbúðar í hlíjuni með svuntu í 40 ár.kv

þorvaldur Hermannsson, 17.4.2008 kl. 21:12

4 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sammála þessu Keli . kv .

Georg Eiður Arnarson, 17.4.2008 kl. 23:36

5 Smámynd: G Antonia

Góða og heila helgi Keli minn

G Antonia, 19.4.2008 kl. 02:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þorkell Rúnar Sigurjónsson

Höfundur

Þorkell Sigurjónsson
Þorkell Sigurjónsson
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...196_1252211
  • ...056_1245763
  • ...002_1245762
  • ...d_1_1245761
  • ...002_1245245

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband