1.7.2011 | 12:09
AÐALLEGA MYNDIR FRÁ EYJUM.
Árið 1947 við vinirnir og Lautarpeyjar, Ragnar Guðnason frá
Steini og Keli í Ártúni. Stöndum hér á tröppum Ártúns Vesturvegi 20.
Raggi heilsar að hermannasið og ég er að reyna að ná dálkinum
í mynd. (hnífurinn sem maður bar í hulstri, var oft kallaður "dálkur".
Árið 1961. Kristinn, Kiddi Bald og ég fyrir framan fjallakofa
sem við gistum í yfir eina helgina, þegar við vorum í Noregi
að tína ávexti við Hardanger-fjörð.
Hér má sjá okkur félaga í einu af mörgum ávaxtatrjám,
sem við urðum að klífa til að ná eplunum sem við m.a. tíndum.
Ég er hér staddur í Gum-verlsun við Rauða torgi í Rússlandi árið 2003.
Var svo heppinn að hitta á félaga Vladimir Ilyice Lenin með bjór í
hönd. Áttum gott spjall saman, en hann var að taka sér pásu,
frá því að liggja í grafhýsinu við Kremlarmúrinn.
Í tilefni goslokahátíðar er hér mynd af vikurhreinsunargengi 1973.
Frá vinstri: Dönitz sjálfur á skóflu kenndur við Hólshús, ég ók vörubílinn
hans Sjonna, leigubílstjóri úr Rvk. keyrði bíl auðvitað og
svo hann Rúnar sem var á moksturstækinu.
Myndina tók Kristján nokkur sonur apótekarans á þessum árum hérna
í Eyjum.
Árið 1977 var verkfall iðnaðarmanna hér í Eyjum
Hér má sjá nokkra félaga á skrifstofu verkalýðsfélagsins
í Miðstræti.
Frá vinstri aftari röð: Björn Grétar, Bibbi Valtýs, Óli Backman, ég,
Bjarni Samúelss, Róbert í Prýði, man ekki,
fremst er Lárus Kristjáns, Þór Valtýs, Trausti Jakobs, og Valur Valsson.
Þegar ég bjó á fastalandinu 1984-1997 vann ég í Blikksmiðju
við almenna blikksmíða vinnu og svo aðal vinnan var að smíða
hitaelement. Þetta var eitt það stærsta sem ég smíðaði,
en það var fyrir MS á Bitruhálsi. Oft á tíðum var vertíðarblær
við smíðina, því hitaelement eru mjög algeng í einbýlishúsum Reykvíkinga
þannig að það þurfti að hafa hraðar hendur, þá sérstaklega á veturna.
Hér má sjá betur hversu stór hitaelementin voru sem ég smíðaði
og voru notuð í Mjólkursamsöluna að Bitruhálsi.
Yngsti sonur minn, Ólafur Helgi 5 mánaða gamall árið 1981.
Beta mín árið 2000 í fullum ÍBV skrúða.
Mynd tekin við sama tækifæri og erum við hjónkornin svona
líka ánægð og hamingjusöm, sjálfsagt verið að koma af Hásteinsvelli
eftir góðan sigur okkar manna, ÍBV.

Foreldrar mínir ásamt yngsta syni mínu í garðinum að
Vallargötur 18.
Um bloggið
Þorkell Rúnar Sigurjónsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
ibvfan
-
fosterinn
-
maggibraga
-
solir
-
georg
-
gretaro
-
sigthora
-
kjartanvido
-
eyglohardar
-
rustikus
-
svenko
-
eyjapeyji
-
kokkurinn
-
valdivest
-
disin
-
smarijokull
-
kristleifur
-
gudnihjoll
-
sjonsson
-
nautabaninn
-
prakkarinn
-
bergen
-
icekeiko
-
asthildurcesil
-
joiragnars
-
hallarut
-
annabjo
-
jensgud
-
jonaa
-
svarthamar
-
kaffi
-
stormsker
-
olinathorv
-
zunzilla
-
gbo
-
steinibriem
-
siggith
-
ea
-
svanurg
-
tannibowie
-
valdimarjohannesson
-
martasmarta
-
gullfoss
-
elnino
-
sunna2
-
thjodarskutan
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 250628
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 13
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.