15.12.2015 | 21:58
STEINRUNNIÐ ÍHALD !
Ég hefi verið að íhuga útfrá umræðum á alþingi um eitt af aðal málum minnihlutans, sem þeir bera mjög fyrir brjósti, þ.e. a.s. afturvirkar greiðslur til öryrkja og ellilífeyrisþega. Það strandar á meirihlutanum s.s. sjálfstæðisflokki og framsóknarflokki að það sanngirnismál nái í gegn. Því spyr ég mig sjálfan sem er ellilifeyrisþegi og svo aðra slíka sem og auðvitað öryrkja alla, hvort þeim finnist of í lagt með þessar afturvirku hækkanir ? Enhverjir eru sem telja að við höfum nóg fyrir okkur að leggja, heil 17 % frá núverandi stjórnvöldum, en n.b. tæp 10 % koma eftir áramót. Er ekki villandi þegar stjórnarsinnar tala um heil 17 % hækkun á lífeyri, þegar viðmiðunin sem reiknað útfrá er lág. Að sjálfsögðu koma lágar upphæðir út úr slíkum reikningi ! Í framhaldin má hugsa sér hækkanir þeirra alþingismanna, sem nú fá afturvirkar hækkani sem nema hunduðum þúsunda króna, en í þeim hópi eru stjórnarliðar sem standa sem fastast á móti sanngjörnum afturvirkum greiðslu fyrir ellilífeyrsþega og öryrkja. Gætu þingmenn yfirleit lifað einhverju lífi svo talist geti með innan við tvö hundruð þúsund á mánuði, ég held ekki. Samhvæmt ýmsum tölum um kosningar og fylgi flokkanna, kemur í ljós að allt of stór hópur leyfi ég mér að segja, sem kýs sjálfstæðisflokkinn og kemur úr röðum eldri borgara í landinu. Hvernig væri nú að þið sem undanfari ár og kannski áratugi, hafið kosið sjálfstæðisflokkinn, að þið standi nú með ykkur sjálfum og kjósið eitthvað annað en þann flokk í næstu kosningum ?
Enn deilt um fjárlögin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Þorkell Rúnar Sigurjónsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- ibvfan
- fosterinn
- maggibraga
- solir
- georg
- gretaro
- sigthora
- kjartanvido
- eyglohardar
- rustikus
- svenko
- eyjapeyji
- kokkurinn
- valdivest
- disin
- smarijokull
- kristleifur
- gudnihjoll
- sjonsson
- nautabaninn
- prakkarinn
- bergen
- icekeiko
- asthildurcesil
- joiragnars
- hallarut
- annabjo
- jensgud
- jonaa
- svarthamar
- kaffi
- stormsker
- olinathorv
- zunzilla
- gbo
- steinibriem
- siggith
- ea
- svanurg
- tannibowie
- valdimarjohannesson
- martasmarta
- gullfoss
- elnino
- sunna2
- thjodarskutan
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 250243
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 13
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Megnið af kjósendur VEIT hvernig vintri flokkarnir breytast ef þeir komast í stjórn. Mannstu ekki síðustu stjórn ?
Og veistu að megnið að kjósendum vill frekar Steinrunnið Íhald heldur en að fá vintri stórn aftur !
Trúðu því bara.
Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 15.12.2015 kl. 22:39
Ágæti Birgir. Gullfiskaminn okkar er oft við brugðið og þannig er með þig góði maður. Ég held að í raun séu íslendingar ekki búnir að gleyma hverig íhald þessa lands skildi við árið 2009. Allt í kaldakoli og ekki stóð steinn yfir steini. Þannig var ástandið þegar vinstrisjórn tók við 2009. Ég ítreka skoðun mína, allt er betra en íhaldið !
Þorkell Sigurjónsson, 15.12.2015 kl. 23:36
Öll umræða, sem byggist á athugasemdum númer eitt og tvö, við þessa færslu, er meginmeinsemd samfélags okkar og allrar vitrænnar umræðu. "Hver gerði Gerði grikk í sumar, hver gerði Gerði bomsi bomsi bomm"? Bjálfaleg umræða, sem að lokum skilar tómum bjálfum, sem ekkert skilja í hvors annars bjálfahætti.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Halldór Egill Guðnason, 16.12.2015 kl. 00:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.