28.8.2008 | 22:06
AÐ EIGA SÉR DRAUM UM ÍBV.
Í kvöld lauk síðasta leik ÍBV á heimavelli á þessu ári.
Úrhellisrigning var mest af leiktímanum og varð mér hugsað til
þess, að nú hefði verið gott hafa þak yfir stúkunni.
ÍBV liðið lék fína knattspyrnu og sigurinn aldrei í hættu.
Ef liðið spila svona í þeim leikjum sem eftir eru þarf ekki að
efast um góða útkomu úr þeim fyrir ÍBV.
Tók eftir að byrjað er, að grafa fyrir knattspyrnuhúsinu og
kannski ekki seinna vænna, þar sem ellefu mánuðir hafa liðið
síðan skóflustungan var tekin, sem átti að marka upphaf framkvæmda.
Ekki er hægt að leiða hjá sér, að íhuga það sem efst hefur verið
í umræðu mann gagnvart fótboltanum, en þar á ég við
viðbót við stúkuna og þak yfir hana.
Engar kostnaðar tölur hafa sést hvað svona framkvæmd muni kosta.
En einsýnt er.
Ef leikir liðsins okkar ÍBV verða leiknir hér næsta sumar,
þarf annaðhvort að fá lengri frest og bæjarstjórnin taki á
sig rögg og semji ásamt stjórn ÍBV um það við KSÍ að
stúkuframkvæmdir verði gerða á næstu tveimur, þremur árum.
Þó ég telji mig ekki nískan mann, þá finnst mér það nokkuð
mikið í fang ráðist að mæta til Reykjavíkur í hvern heimaleik ÍBV næsta
sumar.
Það hefur verið ánægjulegt að fylgjast með ÍBV liðinu í sumar
og hversu vel þjálfarinn Heimir Hallgrímsson hefur verið vakandi
og sofandi og lagt sig mikið fram og árangurinn, að koma í ljós.
Ekki má heldur gleyma leikmönnunum sem hafa sýnt feiknar framför
ekki síst þeir yngri og ekki má gleyma þeim sem eru í
knattspyrnuráðinu, sm leggja fram mikla vinnu.
En þessi leikur í kvöld var mér sönnun á, að við erum með gott
lið, sem á fullt erindi í úrvalsdeildina næsta sumar.
Mig langar í lokin að þakka knattspyrnuráði ÍBV
og liðinu sjálfu, að sýna konu minn sem lést í sumar þann heiður og
virðingarvott
að tileinka henni leik og spila hann með sorgarbönd.
Og allra síðast vonast ég svo sannarlega til, að ég fái að þenja
raddböndin
næsta sumar sem hingað til á Hásteinsvelli. Áfram ÍBV, áfram ÍBV.
Um bloggið
Þorkell Rúnar Sigurjónsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- ibvfan
- fosterinn
- maggibraga
- solir
- georg
- gretaro
- sigthora
- kjartanvido
- eyglohardar
- rustikus
- svenko
- eyjapeyji
- kokkurinn
- valdivest
- disin
- smarijokull
- kristleifur
- gudnihjoll
- sjonsson
- nautabaninn
- prakkarinn
- bergen
- icekeiko
- asthildurcesil
- joiragnars
- hallarut
- annabjo
- jensgud
- jonaa
- svarthamar
- kaffi
- stormsker
- olinathorv
- zunzilla
- gbo
- steinibriem
- siggith
- ea
- svanurg
- tannibowie
- valdimarjohannesson
- martasmarta
- gullfoss
- elnino
- sunna2
- thjodarskutan
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 13
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þakka þér Bb fyrir innlitið. Verst af öllu er það, að þú skulir vera hætt með bloggsíðuna þína. En kannski snýst þér hugur og kemur tvíefld í haust , eða vetur það væri óskandi. Kveðja.
Þorkell Sigurjónsson, 28.8.2008 kl. 23:20
sammála . kv .
Georg Eiður Arnarson, 29.8.2008 kl. 07:04
Sæll félagi. Er ekki hægt að byggja þannig íþróttarhús að hægt sé að nýta þakið sem stúku fyrir fótboltavöllinn bara smá innlegg kannski fáránlegt.
Guðjón H Finnbogason, 30.8.2008 kl. 16:36
Sæll Keli, smá sending til á minni síðu.
Yngvi Högnason, 30.8.2008 kl. 16:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.