7.3.2009 | 15:36
AÐ KOMA VEL FRAM VIÐ ALLA.
Í pistli, sem ber heitið "Bakþankar" og birtist á baksíðu
Fréttablaðsins á hverjum degi var einn slíkur í s.l. viku
og er eftir Jón Sigurð Eyjólfsson.
Pistillinn vakti mig virkilega til umhugsunar um lífið og tilveruna og
vonandi verður mér fyrirgefið að ég birti hann.
Með Clapton úti á engi:
Dag nokkurn á öndverðum sjöunda áratug síðustu aldar kom
ungur maður að tali við stöðvarstjóra á lestarstöð skammt frá
Beaulieu á Englandi.
Sá ungi bar höfuðið ekki hátt enda hafði hann lognast útaf nóttina
áður á drykkju samkomu á tjaldstæði í nágrenninu, vaknað síðan
glerþunnur og peningalaus.
Þar að auki var hann búinn að gera í brækurnar og æla yfir sig allan.
Menn sem þannig er ástatt fyrir eru ekki líklegir til að ná einhverjum
árangri í samningaviðræðum.
En stöðvarstjórinn sá aumur á þeim unga og hripaði
skuldarviðurkenningu svo hann kæmist heim til
Ripley.
Af hverju í ósköpunum skyldi hann hafa gert það?
Hvað fær menn til að treysta einhverjum sem er með allt niður um sig?
Ekki nóg með það heldur lætur hann reyna á þolrif samferðarfólksins,
sem var almennilega til fara og þurfti að þola návist þessa
útataða saurlífsseggs.
Stöðvarstjórinn hefur verið meðvitaður um það,
að skuldir má afskrifa en mannsandann aldrei.
Jafnvel þótt hann sé í lægstu skör niðurlægingarinnar.
Og oft vill það nú verða þannig, að sá sem þekkir lægðirnar
fær oft viljann og máttinn til að lyfta mannsandanum í efstu hæðir.
Og stöðvarstjórinn hafði á réttu að standa.
Lífið er oft eins og rúsibani og þó maður rekist á einhvern,
sem kominn er á fjóra fætur
væri manni hollast,
að staldra við áður en hann er afskrifaður líkt og skuld
fyrrverandi auðkýfings.
Enda rættist heldur betur úr þessum unga manni,
Eric Clapton að nafni, þó vissulega hafi hann lognast út af við
sullið nokkrum sinnum síðan.
Clapton hefur komist til æðstu metorða enda lyft anda ófárra upp
til skýja með tónlist sinni.
Hann hefur einnig opnað
meðferðarstofnun fyrir vímuefna fíkla og því afeitrað marga,
sem áttu það á hættu að vakna illa á sig komna úti á engi.
Við Íslendingar erum einmitt núna ný vaknaðir úti á engi eftir svakalegt
svall og ástandið er ekki upp á marga fiska, kannski nokkrar gulldeplur.
Samningsstaða okkar er því svipuð og hjá gítarleikaranum knáa í
árdaga.
Ég vil því benda sendinefnd Alþjóða gjaldeyrissjóðsins á
sjálfsævisögu Eric Claptons,
en hún er á tilboði núna og kostar ekki nema
átta pund.
Um bloggið
Þorkell Rúnar Sigurjónsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- ibvfan
- fosterinn
- maggibraga
- solir
- georg
- gretaro
- sigthora
- kjartanvido
- eyglohardar
- rustikus
- svenko
- eyjapeyji
- kokkurinn
- valdivest
- disin
- smarijokull
- kristleifur
- gudnihjoll
- sjonsson
- nautabaninn
- prakkarinn
- bergen
- icekeiko
- asthildurcesil
- joiragnars
- hallarut
- annabjo
- jensgud
- jonaa
- svarthamar
- kaffi
- stormsker
- olinathorv
- zunzilla
- gbo
- steinibriem
- siggith
- ea
- svanurg
- tannibowie
- valdimarjohannesson
- martasmarta
- gullfoss
- elnino
- sunna2
- thjodarskutan
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 13
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Kveðja til Eyja frá Valda
þorvaldur Hermannsson, 8.3.2009 kl. 22:02
Sæll Keli,Ætlar þú ekki að hvetja Jóhönnu í formannin?kv
þorvaldur Hermannsson, 8.3.2009 kl. 23:45
Sæl og blessuð bæði tvö. Alltaf gaman að fá þig í heimsókn Bb. Þorvaldur minn þú veist að ég er rótækari en svo, að ég láti mig mál Samfó varða. Kær kveðja til ykkar beggja.
Þorkell Sigurjónsson, 9.3.2009 kl. 10:45
Sæll Keli.
Þetta var gott innlegg.
Kveðja.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 12.3.2009 kl. 05:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.