12.10.2009 | 21:29
SAMVISKUSAMI SAMVERJINN.
Vonandi bregður engum við það að líta svo fagurt dýr,
sem rottan er?
Þessa síðustu og verstu tíma veitir ekki af hlýju í sálina,
að minnsta kosti upplifði ég þá tilfinningu, þegar ég las
uppvaxtarsöguna
hans Sigurðar A. Magnússonar, "Undir Kalstjörnu".
Í þessari ágætu lesningu segir Sigurður m.a. frá föður sínum, sem var
margslunginn persóna.
"Hann þoldi undir engum kringumstæðum að sjá skepnur þjást
og gat komist við eða orðið ævareiður ef hann varð vitni að illri
meðferð á málleysingjum.
Mér er í fersku minni viðbrögð okkar krakkanna fyrsta árið í
sumarbústaðnum (en sumarbústaðurinn var í nokkurn tíma heimili
Sigurðar og fjölskyldu hans) þegar rotta,
sem var útsteypt í sárum, gerði sig heimakomna kringum heimilið.
Pabbi sá strax að hún gat litla sem enga björg sér veitt og mataði hana
og hjúkraði þar til hún var gróin sára sinna.
Okkur krökkunum bauð við rottunni og fullorðið fólk sem fékk veður af
þessu uppátæki var furðu lostið yfir því ábyrgðarleysi að hæna
að barnmörgu heimili meindýr sem kannski væri hættulegur
smitberi,
en pabbi lét slíkt hjal sem vind um eyru þjóta og linnti ekki
viðleitni sinni fyrr en rottan var orðin sjálfbjarga.
"Stórkostlegur maður."
Dægurmál | Breytt 13.10.2009 kl. 09:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.9.2009 | 21:38
SJÓN ER SÖGU RÍKARI.
Á ferð minni í höfuðstaðnum fyrir nokkru síðan lá leið mín
á Listasafn Íslands, en þar er sýning sem allir ættu,
ef þeir hafa tækifæri á að skoða.
Í skýringarskrá segir:
Hvað vitum við um myndlist í þjóðareign og hvaða gildi hefur hún fyrir
okkur?
Lungann úr öldinni sem leið var staða íslenskrar myndlistar óljós og
bakland hennar heldur veikt.
Minnisleysi fólks þegar ríkisbankarnir voru einkavæddir og
listaverkaeign þeirra lenti milli stafs og hurðar sem hrein afgangsstærð
sem enginn mundi eftir fyrr en sala bankanna var um garð gengin.
Nú fáeinum áru árum síðar beinir L. Í. kastljósinu aftur að þessum
nær ósýnilegu gersemum sem gleymdust í einkavæðingarfárinu
og nú talað um sem ómetanleg þjóðareign.
Þrír bankar lána safninu fjölda verka úr fórum sínum.
Þar er að finna margar ómetanlegar gersemar eftir flesta listamenn
þjóðarinnar á öldinni sem leið.
Þetta er verk Kjarvals "Hvítasunnudagur" sem varð frægt
í fréttum, þegar það var keypt til landsins fyrir nær 30 milljónir kr.
á málverkauppboði í Kaupmannahöfn í byrjun árs 2007.
Talað var um verkið, sem
"Kúbískur Kjarval sleginn á metfé í Kaupmannahöfn.
Myndin sú arna heitir "Kaplagjóta"og er eftir
Júlíönnu Sveinsdóttir myndlistakonu, sem fædd er í Vestmannaeyjum.
Eins og margir sjálfsagt vita, sem komnir eru á miðjan aldur
var Júlíanna systir Ársæls Sveinssonar, sem rak útgerð
um miðja síðustu öld og var einnig lengi í bæjarstjórn hér í Eyjum.
Þessi mynd er eftir Finn Jónsson
og ber það nafn, sem kannski gæti verið mottó fyrir
ný lokinni græðgi og einkavæðingarfári,
"baráttan um gullið".
"Composition"
eftir Baldvin Björnsson gullsmið, sem lengi átti heima í Eyjum
og var faðir Björns Th. Björnssonar listfr. og rithöfundar.
Að lokum kemur svo hérna verk eftir núlifandi listamann,
Helga Þorgils Friðjónsson sem heitir
"heilög fjölskylda"
og mættu stjórnvöld kannski hafa það í huga nú um stundir.
Þessar fimm myndir eru olíumálverk ásamt tugum annarra verka á
þessari einstæðu sýningu í Listasafni Íslands, sem stendur til
18. október og er hún
sjón sögu ríkari.
Fyrir þá sem ekki eiga heimangengt vil ég benda Vestmannaeyingum
á málverka-útsýnisgluggann í forstofu bókasafnsins hérna í Eyjum,
en nú eru myndverk eftir Kristinn Ástgeirsson í "kassanum,"
en þar er einnig
sjón sögu ríkari.
Dægurmál | Breytt 11.9.2009 kl. 00:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.9.2009 | 21:26
KNATTSPYRNUHÚSIÐ OG FRAMTÍÐ ÍBV.
Þessi mynd er tekin í dag og sýnir okkur fótbolta áhugafólki hérna í
Eyjum
hið "langþráða knattspyrnuhús",
sem næstum því er við það að rísa"?
Nei nei án gríns þá virðist staðreyndin sú, að fyrstu merki um
knattspyrnu hús muni sjást mánuði fyrir næstu bæjarstjórnar
kosningar, þ.e.a.s. í vor.
Þannig,
að Heimir þjálfari ÍBV mun stjórna sinni fyrst æfingu í glæsilegu
knattspyrnu höll okkar,
þann 28. september 2010
nákvæmlega þremur árum frá því
fyrsta skóflustungan
var tekin.
Þar sem ég tel allar líkur á,
að ÍBV muni spila í úrvalsdeildinni á næsta
ári leyfi ég mér hér með að óska þess við bæjarfélagið og þeirra sem
því stjórna,
að ÍBV lið karla í fótbolta verði gert kleift
að nálgast peninga til kaupa á góðum framherja og gera það að
markmiði,
að ÍBV nái Evrópusæti á næsta ári.
En það eitt að taka þátt í Evrópu-keppni gæti fært okkur
30-40 milljónir, sem m.a. mundi borga framlag bæjarins til kaupa á
framherjanum góða.
Það vita allir og einnig þeir, sem engan áhuga hafa á fótbolta,
að ÍBV er framvörður þessa bæjarfélags frá mörgum hliðum séð.
Þannig að þeir sem stjórna hér í Eyjum eiga að setja metnað sinn í,
að efla ennþá frekar orðstír knattspyrnunnar
þar sem ÍBV spilar stærstu
"rulluna".
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.9.2009 | 19:02
ÓHRÆSIÐ.
Steingrímur J. segir ábyrgðarlaust að borga ekki af ört hækkandi lánum
landsmanna og viðskiptaráðherra og forsætisráðherra taka í sama
streng.
Hvað álítur vinstri stjórnin, ríkisstjórn hins vinnandi manns,
að við séum?
Dráttar klárar sem hægt er að píska áfram fram í rauðan dauðann?
Nei, nú er nóg komið.
Fólk fær hvergi skjól eða hjálp undan drápsklyfjum lána,
sem sífellt hækka og tútna út eins og púkinn á fjósbitanum forðum
daga.
Oftar en ekki kemur mér kvæði Jónasar Hallgrímssonar,
ÓHRÆSIÐ í hug,
þegar fólkið sem komið er í þrot með lánin sín og hvorki bankar né
ríkisstjórnin "okkar" hreyfa hvorki legg né lið því til hjálpar.
EN í kvæði Jónasar segir frá rjúpunni,
sem flúði undan fálkanum og í skjólið,
sem hún hélt hún fengi í fangi konunnar í dalnum.
"En gæðakonan góða (ríkisstj.)
grípur fegin við
dýrið dauðamóða-
dregur háls úr lið;
plokkar, pils upp brýtur,
pott á hlóðir setur,
segir happ þeim hlýtur
og horaða rjúpu étur.
![]() |
Háskalegt að borga ekki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.8.2009 | 21:19
AÐ EIGA SÉR DRAUM.
Þar sem ég sit nú hérna við tölvu sonar míns í íbúð sem er
steinsnar frá inngangi að KR-vellinum verður mér hugsað til leiksins,
sem háður var í gær síðdegis.
Ekki er ætlunin að fjölyrða neitt honum viðvíkjandi, nema að ég eins
og allir þeir fjölmörgu stuðningsmenn og konur, sem mættu
á völlinn vorum auðvitað langt í frá sátt við úrslit leiksins þrátt
fyrir að liðið okkar, ÍBV var að sýna fanta góðan leik.
Ég tek heils hugar undir með vini mínum Heimir þjálfara, þegar hann
sagði eftir leikinn. "Við þyrftum engan að hræðast léki ÍBV liðið eins og
það gerði á KR vellinum".
Stemmingin hjá stuðningsmönnum á þessum leik svo og tilþrif
Stalla Hú var það sem fékk mig til að hugsa tíu fimmtán ár aftur í
tímann, þegar líf og fjör var fyrir hvern einasta leik, sem ÍBV
háði hérna á fasta landinu.
Mín von er, að stuðningsfólk ÍBV á fasta landinu láti ekki deigan síga,
þrátt fyrir, að allt fór ekki sem skyldi á leiknum í gær.
Næsti leikur er heima í Eyjum á laugardag og þar verður bloggari
mættur til hvatningar liðinu sínu, ÍBV.
Takmarkið er að vera meðal bestu liða á Íslandi í ár og
Íslandsmeistarar eftir tvö þrjú ár.
Það má svo sem fylgja hér með, að mér vitnaðist í draumi,
að ÍBV muni sigra Val.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.8.2009 | 17:32
AÐ VERA VEL OG MIKILS MEGANDI, EN GREIÐA LÁGA SKATTA.
Eins og flestir, sem rekast inn á síðuna mína hafa kannski tekið eftir
hefir bloggari dvalið erlendis um hálfs mánaðar skeið.
Það sem mesta athygli mína vakti, þegar heim kom og
ég fletti vikublaðinu "FRÉTTIR" var,
"gluggað í skattskrána".
"Meðallaun 100 þúsund krónur"
og þar undir er margt ágætis
fólk.
Mesta undrun mína vakti þó að nokkrir voru þar, sem teljast vera
bæði vel og mikils megandi í þessu bæjarfélagi, en virðast alls
ekki hafa fyrir salti í grautinn.
Þetta góða fólk sýnist mér dags daglega heiðarlegt í framan svo
bágt er að hugsa sér það,
að hér fari ekki frómar manneskjur, þegar þær gera
skattaskýrsluna sína.
Kannski ætti framfærslufulltrúi bæjarins að láta málið til sín taka
og hlaupi undir bagga?
Allavega er bloggari þessarar greinar tilbúinn að rétta fram
nokkrar krónur, því ekki þarf hann að kvarta,
með fjórfalt meiri laun en þetta láglauna
stóreignafólk.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.8.2009 | 14:30
VERDA KOSNINGAR TIL ALTHINGIS Í HAUST ?
Segjum svo að Icesave samningurinn verði ekki sathykktur á
althingi Íslendinga.
Hverslags staða kemur thá upp í framhaldinu og á ég thá við
ríkisstjórnina sem nú situr?
Hrökklast hún frá og mynduð verði
Tjódstjórn,
eða VG, Framsókn og Sjálfst.flokkur reyni thá samstarf?
Ekki sé ég thad gerast að Samfylking og Sjálfst.flokkur nái saman.
Kannski verður stjórnarkreppa og efnt verði til kosninga til
althingis á nýjan leik?
Blikur eru á lofti, sem allar eru válegar,
en versti kostur stöðunnar er sennilega að samthykkja
hinn banvæna Icesave samning.
![]() |
Efast um alvöru þingmanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.8.2009 | 10:10
HAMINGJUÓSKIR TIL ÍBV.
Til hamingju ÍBV.
Í gærkvöldi, thegar leikurinn fór fram var ég satt að segja
alveg að fara úr límingunum.
Ég er ennthá hérna hjá dóttir minni í Sverge.
Varð að láta mér nægja að vera fyrir framan tölvuna og fylgjast
með leiknum.
Thad tók á taugakerfið og sérstaklega thegar ÍBV
dró lið sitt aftar á völlinn og sókn Fjölnis thyngdist.
Greinilega var Albert í marki ÍBV maður leiksins og
vonandi verdur hann í thessu form,
thegar við mötum hans gamla liði í næstu umferð.
En sigur og thrjú stig voru takmarkið og thad tókst.
Til hamingju ÍBV og áhorfendur á Hásteinsvelli í gærkvöldi.
Kveðja til allra í Eyjum.
![]() |
Góður sigur ÍBV gegn Fjölni - tvö rauð spjöld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 13:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.8.2009 | 09:10
RÚSSARNIR KOMA, RÚSSARNIR KOMA ?
Hversvegna í ósköpunum fáum við ekki Rússana
til að sinna loftrýmiseftirliti fyrir okkur.
Their eru hér hvort sem er daglegir gestir
yfir landinu.
Thad myndi spara milljarða, sem við eydum
í thennan ótharfa, sem eftirlitið er,
og Rússarnir gera thetta ábyggilega fyrir ekki neitt.
![]() |
Birnir yfir Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.8.2009 | 12:01
ÍHUGUN DAGSINS.
Heimsins lystisemdir einar njörva thig niður.
Frelsið thitt nýja er undir thví komið
hve léttilega thér tekst að hefja thig yfir jarðneska hluti.
Stýfðir vængir geta vaxið að nýju.
Brotnir vængir geta endurheimt meiri kraft og
fegurð en áður var.
Ef thú vilt,
geturðu öðlast lausn og frelsi.
![]() |
Kókaín og amfetamín í Eyjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Þorkell Rúnar Sigurjónsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
ibvfan
-
fosterinn
-
maggibraga
-
solir
-
georg
-
gretaro
-
sigthora
-
kjartanvido
-
eyglohardar
-
rustikus
-
svenko
-
eyjapeyji
-
kokkurinn
-
valdivest
-
disin
-
smarijokull
-
kristleifur
-
gudnihjoll
-
sjonsson
-
nautabaninn
-
prakkarinn
-
bergen
-
icekeiko
-
asthildurcesil
-
joiragnars
-
hallarut
-
annabjo
-
jensgud
-
jonaa
-
svarthamar
-
kaffi
-
stormsker
-
olinathorv
-
zunzilla
-
gbo
-
steinibriem
-
siggith
-
ea
-
svanurg
-
tannibowie
-
valdimarjohannesson
-
martasmarta
-
gullfoss
-
elnino
-
sunna2
-
thjodarskutan
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar