18.12.2011 | 13:56
KLING, KLING KISTAN TÓM ?
Fyrir tæpu ári síðan var þessi ágæti maður staddur á Florída og naut
sólar og þess, að vera í 20# hita innan um appelsínutrén.
Því set ég þessa mynd hér inn að ofan, af þeirri einföldu ástæðu, að vera hérna
heima í Vestm.eyjum þessa daganna er algjör andstaða við appelsínuilm og
snjóleysið í USA, um síðustu áramót.
Það er ekki ætlunin að vera með þessum línum mínum neikvæður og leiðinlegur,
því hefi ég ekki efni á,
en leyfi mér samt,
að minnast á ástandið hér á götum bæjarins, og ekki hvað síst
gangstéttar okkar góða bæjar.
Því meiri furðu vekur það, að allar fjárhagstölur sýna það einmitt núna,
að Vestmannaeyjabær stendur aldrei betur að vígi en einmitt í dag.
Örlítill sandur hér og þar ætti, fjandakornið ekki að gera útaf við fjárhagsstöðuna,
eða hvað ?
Ég skora á bæjaryfirvöld á að taka sig saman í andlitinu og gera eitthvað til að
minnka hættuna á slysum, sem óhjákvæmilega verða vegna hálkunar.
Datt í hug kvæðið eftir Davíð Stefánsson vegna tregðu bæjarins að gera götur og
gangstéttar hæfar til yfirferðar fyrir bæjarbúa..
Kvæðið heitir ,
Nirfillinn:
Kling, kling.
Kistan tóm.
Gleðja sig við gullsins hljóm.
Safna aurum. Aura spara.
Kling, kling.
Kistan hálf.
Kistan - hún er sálin sjálf.
Kling, kling.
Kistan full.
He, he ... Ormagull.
Kistan var af guði gjörð.
Grafa í jörð.
Grafa í jörð.
Um bloggið
Þorkell Rúnar Sigurjónsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- ibvfan
- fosterinn
- maggibraga
- solir
- georg
- gretaro
- sigthora
- kjartanvido
- eyglohardar
- rustikus
- svenko
- eyjapeyji
- kokkurinn
- valdivest
- disin
- smarijokull
- kristleifur
- gudnihjoll
- sjonsson
- nautabaninn
- prakkarinn
- bergen
- icekeiko
- asthildurcesil
- joiragnars
- hallarut
- annabjo
- jensgud
- jonaa
- svarthamar
- kaffi
- stormsker
- olinathorv
- zunzilla
- gbo
- steinibriem
- siggith
- ea
- svanurg
- tannibowie
- valdimarjohannesson
- martasmarta
- gullfoss
- elnino
- sunna2
- thjodarskutan
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.