Ráðherra útvegs rektu nú af þér slyðruorðið.

Mig minnir að að hafa lesið eftir þann nærri heimsfræga Binna í Vinnslustöðinni að útgerðarmenn sem fengju úthlutað kvóta ættu að eiga hann á þeim forsendum, að umgengni þeirra um eignina (fiskinn ) yrði svipað og hjá bóndanum sem á sínar rollur og ætti þannig að tryggja  meiri ábyrgð gagnvart stofninum.  Með þetta í huga virðist þetta bara vera ands.....  kjaftæði eins og svo margt annað sem að okkur venjulegu fólki er haldið að eignahugtakið skapi þá ábyrgð sem til þarf, þannig að stofnarnir rýrni ekki meir en komið er. Hvatning ráðamanna af ýmsum toga, sem hvetja til þess að rugga ekki bátnum í umræðunni um kvótann ( styggja ekki sægreifana) er að mínu áliti argasta ábyrgðarleysi og ætlað til þess  eins, að greifarnir geti í næði notið afraksturs sjávaraflans sem sífellt fer minnkandi . Þess vegna styð ég ráðherra útvegs í því að hér fari fram  uppstokkun á kvóta kerfinu til að forðast algjört hrun í veiðum.


mbl.is Sjávarútvegsráðherra: Þurfum að ræða málin af yfirvegun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Heldurðu ekki að þú hafir misskilið ráðherrann eitthvað?

Ég hef litla trú á að hann hafi meint að hann ætlaði að stokka kvótakerfið upp.

Árni Gunnarsson, 2.6.2007 kl. 22:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þorkell Rúnar Sigurjónsson

Höfundur

Þorkell Sigurjónsson
Þorkell Sigurjónsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...196_1252211
  • ...056_1245763
  • ...002_1245762
  • ...d_1_1245761
  • ...002_1245245

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband