Í MINNINGU SNILLINGS.

Svefninn er víðs fjarri og þess vegna fór ég að glugga í greinum klipptum úr dagblöðunum. Ein slík hefur ávallt haft sérstök áhrif á mig. Hún fjallar um knattspyrnusnilling sem lét í minni pokann fyrir Bakkusi. Greinin er stutt en mögnuð og nefnist; "í minningu snillings"og hljóðar svo: 
Snillingar eru þær manneskjur sem geta gert hluti sem annað fólk ræður ekki við-og látið líta svo út að ekkert sé einfaldara.
Einn slíkur snillingur var til moldar borinn í dag í fæðingabæ sínum, Belfast á Norður-Írlandi.  Hann hét Georg Best og var knattspyrnumaður.  Hann gat sólað alla upp úr skónum, nema sjálfan sig.  Mest öll auðæfi mín fóru í áfengi,  konur og hraðskreiða bíla, sagði hann.  Afganginum eyddi ég í vitleysu.
Svartur húmor til að breiða yfir mikla sorg hjá manni sem vissi að í Bakkusi hafði hann fyrirhitt ofjarl sinn.
En Bakkus sjálfur hefur enga kímnigáfu, hvorki hvíta né svarta, og fer ekki í manngreinaálit heldur leggur andstæðinga sína að velli án tillits til snilligáfu, hæfileika, menntunar eða mannkosta.  Stærsta viðfangsefni hvers manns í lífinu er að ná stjórn á sjálfum sér, og við það verkefni virðist snilligáfan koma að litlum notum.

Nú reyni ég aftur að sofna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þorkell Rúnar Sigurjónsson

Höfundur

Þorkell Sigurjónsson
Þorkell Sigurjónsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...196_1252211
  • ...056_1245763
  • ...002_1245762
  • ...d_1_1245761
  • ...002_1245245

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 249595

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 56
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband