TRÚIN ER LJÓSINU LÍKAST.

Trú á hið óséða,

óþekkta er huggun mannkynsins.

Sýnir hugans eru stærri en augans.

Hin göfuga trú er þeirra,

sem lofa ljósinu að streyma inn í sálir sínar

frá hinni ótæmandi sannleiksuppsprettu,

sem vökvar allan heiminn.


mbl.is Trúa á Guð, drauga og djöfulinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Voðalega á fólk bágt, þegar það hefur þörf fyrir trú eins og þessa. Hver vill fara til lands þar sem einræði ríkir? Þar sem einræðisherrann vakir yfir öllu sem þú segir gerir og hugsar og ef þér verður á þá verður þér hennt til helvítis þar sem þú munt brenna til eylífðar? Hvern heilvita mann langar til himnaríkis?

Það stendur í biblíunni að menn megi selja dætur sínar í þrældóm og það eigi að grýta börn sem eru óþæg, þetta eru bara svona smá dæmi um það sem stendur í þessari bók sem er svo mikið haldið á lofti. Hvernig stendur á því að þið sem trúið skautið yfir svona texta úr biblíunni og látið eins og hann sé ekki til? Þið veljið bara það úr bókar skrattanum það sem þið viljið þá og þá stundina. Ef ykkur er bennt á þetta þá snúið þið bara út úr og komið með einhverja þvælu sem er til þess gerð að drepa umræðuna.

Valsól (IP-tala skráð) 4.12.2007 kl. 23:15

2 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Þið misskiljið mig  vitlaust  eins og maðurinn sagði, gestir mínir. Ljós sannleikans er innra með okkur og á það  trúi ég , ekki á það sem kemur frá prestum og falsspámönnum, sem halda sig í samkunduhúsunum.

Þorkell Sigurjónsson, 4.12.2007 kl. 23:46

3 Smámynd: Sigurjón

Þú trúir sumsé á guð, ekki satt.  Hvað með nornir og álfa?

,,Ljós" sannleikans er fundið með vísindalegum rannsóknum á náttúrunni og hennar fræðum.

Sigurjón, 5.12.2007 kl. 01:14

4 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Nei, því miður trúi ég ekki á guð sem allir tala um. Þegar ég tala um ljósið innra með okkur á ég við, að ég trúi á hið góða sem innra býr með okkur öllum, en sú  trú gerir mér kleift, að  treysta á sjálfan mig til góðra verka, því eins og sagt er, guð hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir.

Þorkell Sigurjónsson, 5.12.2007 kl. 11:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þorkell Rúnar Sigurjónsson

Höfundur

Þorkell Sigurjónsson
Þorkell Sigurjónsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...196_1252211
  • ...056_1245763
  • ...002_1245762
  • ...d_1_1245761
  • ...002_1245245

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 249690

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband