22.4.2008 | 18:19
HVER HEFUR SINN DJÖFUL AÐ DRAGA.
Þegar talað er um leiðinleg störf er orsökin ekki alltaf þau,
að vinnustaðurinn sé svo leiðinlegur heldur kannski það,
að á viðkomandi vinnustað er starfsfólkinu gert það ljóst
að ekki sé vert að gera eða segja neitt sem gæti valdið ólgu.
Forstjórinn ræður og og hinir telja sér skylt að gera það sem til er
ætlast.
Oft lærir fólk snemma á sínum vinnustað að þeir sem hafa munninn
fyrir neðan nefið fá sjaldan launahækkun, viðurkenningu og hrós
og sumir missa vinnuna eða hætta sjálfir.
Fólk temur sér fljótt hollustu við vinnustaðinn, gerir sitt til að allt gangi
snurðulaust,
bælir niður hugmyndir til úrbóta og gætir þess að haga sér skikkanlega
svo að forstjórinn frétti ekkert misjafnt.
Á sumum vinnustöðum þarf fólk á allri sinni athygli að halda
vegna öryggis síns og annarra, þannig að þegar fólki fer að leiðast og
vera áratugum saman á sama vinnustaðnum hlýtur að koma að því,
að fólk geri mistök, eða hreinlega brennur út.
Þess vegna þarf á sumum vinnustöðum,
starfsfólkið sjálft,
að stuðla að samheldni og gera vinnustaðinn
bærilegan.
Leiðinleg störf setja heilann á sjálfstýringu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Þorkell Rúnar Sigurjónsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- ibvfan
- fosterinn
- maggibraga
- solir
- georg
- gretaro
- sigthora
- kjartanvido
- eyglohardar
- rustikus
- svenko
- eyjapeyji
- kokkurinn
- valdivest
- disin
- smarijokull
- kristleifur
- gudnihjoll
- sjonsson
- nautabaninn
- prakkarinn
- bergen
- icekeiko
- asthildurcesil
- joiragnars
- hallarut
- annabjo
- jensgud
- jonaa
- svarthamar
- kaffi
- stormsker
- olinathorv
- zunzilla
- gbo
- steinibriem
- siggith
- ea
- svanurg
- tannibowie
- valdimarjohannesson
- martasmarta
- gullfoss
- elnino
- sunna2
- thjodarskutan
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 250244
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæl og blessuð Búkolla mín. Já, það er víða pottur brotinn, þegar að samskipum starfsfólks og yfirmanna kemur, það er alveg víst. Einelti er því miður víða á vinnustöðum hefur maður heyrt, því miður. Kær kveðja.
Þorkell Sigurjónsson, 23.4.2008 kl. 00:01
Gaman að sjá mynd af tveimur af uppáhalds samstarfsmönnum mínum ( ásamt Gunnu minni og nokkrum öðrum) ... Það var aldrei leiðinlegt hjá okkur bara gaman - saman!!! Bið kærlega að heilsa ykkar á gamla vinnustaðnum mínum Keli minn og sendi sumarknús yfir hafið Gleðilegt sumar!!!!!!
G Antonia, 23.4.2008 kl. 01:37
Sæll Keli, Ég held að það sé skelvilegt að lenda í einelti á vinnustað,það hlítur að draga allan mátt úr mönnum,en það er víst til fullt af fólki sem vilja gera öðrum lífið leitt. kv
þorvaldur Hermannsson, 23.4.2008 kl. 10:10
Gaman þætti mér að vita hvort þú sért að tala um þinn vinnustað Keli eða almennt og hvort Vignir sé svona erfiður eða forstöðumenn almennt
sundgestur (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 10:39
Þarna er einn huldumaðurin(sundgestur)Af hverju eru þessir menn í felum,kv
þorvaldur Hermannsson, 23.4.2008 kl. 11:15
Flott mynd af þér og frænku! Kveðja
Hjördís Inga Arnarsdóttir, 23.4.2008 kl. 14:36
Sæl verið þið öll. Þar sem mér finnst ástæða til að beina orðum mínum að ónafngreindum sundgesti þrátt fyrir að hafa engar skyldur til þess því það er lágmark að menn skrifi undir nafni. Ég ætla samt að nefna það, að það sem ég hefi skrifað hér í greininni 2Hver hefur sinn djöful að draga" er það sem ég hefi lesið um og getur átt við á hvaða vinnustað sem er. Af því Vignir er sérstaklega nafngreindur vil ég taka fram. Í okkar samskiptum í gegn um árin hafa skipst á skin og skúrir eins og gengur í lífinu. Þrátt fyrir það finnst mér fjarskalega vænt um hann Vignir og varla væri ég búinn að vera í íþróttamiðstöðinni öll þessi ár, ef ég hefði ekki í fullu tré við karlinn.
Þorkell Sigurjónsson, 23.4.2008 kl. 15:56
En hver er huldumaðurinn?Ef hann vill ekki gefa sig fram þá á hann að hætta að blogga.kv
þorvaldur Hermannsson, 23.4.2008 kl. 18:30
Kannast við þetta. Ég vann hjá IBM heildsölu í næstum fimm ár. Þetta var lítið fyrirtæki, 5-6 starfsmenn, svo það hefði átt að vera stórskemmtilegt að vinna þarna. Eigandinn var þó svo þurr að maður fór að mygla eftir einhverja mánuði. Það var aldrei brosað, grín var ekki til. Þetta var öðlingur, en hann var bara alveg óskaplega leiðinlegur. Á endanum sagði ég starfinu upp, fórnaði góðum launum fyrir geðheilsuna. Nú er ég með kannski helming í laun miðað við þá, en lífið er skemmtilegra.
Villi Asgeirsson, 24.4.2008 kl. 08:30
Hér er skýringin á "óútskýrðum launamun kynjanna" Kvenfólk almennt leggur meira upp úr góðum móral, starfsaðstöðu og ekki síst hentugum vinnutíma en karlar. Karlar spyrja nr. 1,2 og 3 um launin þegar þeir leita eftir vinnu en hjá kvenfólki er mun algengara að launin komi í 4. sæti á eftir hinum liðunum.
Svo getum við rætt um hvort sé gáfulegra.
Landfari, 24.4.2008 kl. 09:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.