LISTIN BYRTIST MEÐ ÝMSU MÓTI.

DrawPicture


Berglind Kristjánsdóttir, glerlistakona

bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2008.


Listin er tjáð með ýmsu móti og væri e.t.v. að æra  óstöðugan,

ef allt það form skyldi hér upp talið.

Það, sem sterkast höfðar til mín er list tjáð með blýanti og pensli

málaralist og þá eru efstir á listanum gömlu Íslensku meistararnir.


u31_111

Þessi ágæta vatnslitamynd er eftir Jón Engilberts.


Ég rakst á smá grein eftir Tryggva Friðriksson hjá

gallerí Fold, en hann er að tjá áhyggjur sínar vegna fálætis

yfirvald mennta mála gagnvart málaralist hér á Íslandi.

Hann segir það hiklaust, að margt megi gera þannig að almenningur

geti skoðað og eignast listaverk  og nefnir nokkur dæmi.


Listasöfn búi við allt of þröngan húsakost.

Fjármagnið sem söfn fái til nýkaupa sé grátlega lágt og

Ríkið og stofnanir þess gera lítið af því að kaupa myndlist og

slíkt er jafnvel litið hornauga sem óhóf.


Sífelld úlfúð er um starfslaun myndlistamanna.


Höfundaréttargjöld hérlendis eru þau hæstu í heiminum.


Nánast aldrei er fjallað um myndlist í Ríkissjónvarpinu.


Fræðsla um myndlist er í mýflugumynd í skólum landsins.

Þetta eru nokkur atrið, sem Tryggva finnst ástæða til gagnrýna

hér hjá okkur á Íslandi.

Ég veit það, að við hér í Eyjum eigum töluvert safn af góðum og

áhugaverðum listavekum,

sem því miður eru ekki til sýnis fyrir þá, sem njóta vilja, því miður.

Meðan ekkert menningar hús rís hérna hjá okkur væri ekki slæm

hugmynd, að tvö, þrjú myndlistaverk væru til sýnis t.d. á

Bókasafni Vestm.eyja í eins og viku tíma í senn öllum til yndisauka

fróðleiks og skemmtunar.


Ég efast ekki um, að nýi forstöðumaður Bókasafnsins hann Kári

væri maður, að koma þessu í verk ?

 

uppbo%F0-39-107 

 

" BOLI" verk eftir Jóhannes Jóhannesson.

 

 

 

 

 

 


mbl.is Kvartað til lögreglu yfir bænakalli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúnar Sveinbjörnsson

Takk fyrir. Mér er málið skylt. Í listinni í dag er spurningin ekki að geta. heldur að markaðasetja sig.

Engu að síður, lítil markaðssetning njótið. Anna Gunnlaugsdóttir

Rúnar Sveinbjörnsson, 3.5.2008 kl. 20:00

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Sæll frændi. er Berglind ekki tengdadóttir hennar frænku okkar, Svövu Bjarnadóttur, dóttur hennar Oddu frænku? Eða er ég að fara með vitleysu?

Svava frá Strandbergi , 3.5.2008 kl. 21:08

3 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Já Rúnar minn markaðssetningin gengur betur með meiri áhuga almennings, en  það er einmitt "Akkilesarhæll menningarmála í landi hér, því miður.

Sæl frænka. Nei, hún Berglind Kristjánsdóttir er dóttir hans Kristjáns Óskarssonar og Emma Pálsdóttir frá Þingholti  . Berglind er gift Jóni Logasyni og foreldrar hans Logi Jónsson og Halla  Gunnarsdóttir. Þannig að þú ert ekki á réttu róli Svava mín.  Kveðja.

Þorkell Sigurjónsson, 3.5.2008 kl. 23:13

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Já, það er rétt hjá þér Keli, að þetta er ekki rétt hjá mér.  Ég held að hún heiti Bjartey hún tengdadóttir hennar Svövu Bjarnadóttur. Það er ekki nema von að maður ruglist því að ég  þekki þetta frændfólk mitt svo sem ekki neitt lengur.

Svava frá Strandbergi , 4.5.2008 kl. 13:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þorkell Rúnar Sigurjónsson

Höfundur

Þorkell Sigurjónsson
Þorkell Sigurjónsson
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...196_1252211
  • ...056_1245763
  • ...002_1245762
  • ...d_1_1245761
  • ...002_1245245

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 250244

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband