12.5.2008 | 01:19
KOLVITLAUS KÖTTUR Í EYJUM.
Líkamsárás í Vestmannaeyjum, þegar
tveir voru bitnir af kolvitlausum ketti í heimahúsi.
Þessa dagana er verið að auglýsa eftir samstarfsaðila til eftirlits
með hundahaldi í Vestmannaeyjum og er
spurning hvort ekki væri vitlegra, að ráða manninn til eftirlits og
útrýmingar á köttum bæjarins.
Köttum bæjarins til viðvörunar og sjálfsagt ódýrast fyrir
Vestmannabæ væri að setja upp áberandi auglýsingu á því, hvernig
aftöku katta í sveitinni
hér áður fyrr voru framkvæmdar.
Auglýsingin yrði svohljóðandi:
Helst þarf tvo menn til verksins og bregða þeir snæri um hálsinn á kettinum
og hnýta að einn hnút.
Taka svo í sitt hvorn endann á snærinu og herða að
og kisa hangir í lausu lofti.
Stuttu seinn eru dagar kattarins taldir.
Líkamsárás í Vestmannaeyjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Þorkell Rúnar Sigurjónsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- ibvfan
- fosterinn
- maggibraga
- solir
- georg
- gretaro
- sigthora
- kjartanvido
- eyglohardar
- rustikus
- svenko
- eyjapeyji
- kokkurinn
- valdivest
- disin
- smarijokull
- kristleifur
- gudnihjoll
- sjonsson
- nautabaninn
- prakkarinn
- bergen
- icekeiko
- asthildurcesil
- joiragnars
- hallarut
- annabjo
- jensgud
- jonaa
- svarthamar
- kaffi
- stormsker
- olinathorv
- zunzilla
- gbo
- steinibriem
- siggith
- ea
- svanurg
- tannibowie
- valdimarjohannesson
- martasmarta
- gullfoss
- elnino
- sunna2
- thjodarskutan
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 250244
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
ég held það heyri til undantekninga að kettir ráðist á menn og bíti. ég hef einu sinni verið bitinn af ketti og enn má sjá örin. það var minn eigin köttur. þegar ég var 10 ára var ég á heimleið frá vini mínum, seint um kvöld í myrkri. gekk gegn um garðinn heima og sá þar köttinn minn mjálmandi. ákvað að taka hann í fangið og fara með hann inn. þá tjúllaðist hann og beit mig.
málið var að þarna var hann í 'mjálm- og hvæsstríði' við annan kött, óboðinn á landareign míns kattar. ég sá bara ekki hinn köttinn í myrkrinu.
Brjánn Guðjónsson, 12.5.2008 kl. 03:13
Frekar ógeðfelld aftaka ! Ég hef nú bara yfirleitt opnað dyr þá er óboðni kötturinn yfirleitt fljótur að koma sér út. Annars er köttum yfirleitt bara boðið hér inn Kveðja
Hjördís Inga Arnarsdóttir, 12.5.2008 kl. 09:52
Úff Þorkell. Maður vorkennir köttum sem lenda í svona aftökum.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.5.2008 kl. 10:02
Verð að viðurkenna það, að ég yrði ekki maðurinn sá, sem til starfans þyrfti, því ég hefi aldrei þolað , að sjá dýr aflífuð. Man eftir því fyrir fáum árum síðan, að köttur var hér úti í garði hjá mér og var hann að reyna, að ná til smáfugls og tókst næstum því. Ég var svo sár út í köttinn. að ég henti að honum moldarköggli, sem lenti í maganum á kisu svo buldi í. Kattarræfillinn hvarf á augabragði, en ég fékk slíkan móral af mínu uppá tæki, að stuttu seinna gat ég narrað kisu inn og gaf honum rækjur og mjólk, sem sárabætur fyrir mitt ljóta uppátæki. Kveðja og takk fyrir innlitið.
Þorkell Sigurjónsson, 12.5.2008 kl. 11:41
MJAAAAAAAÁ!!
Haraldur Davíðsson, 12.5.2008 kl. 15:48
Æi, Þorkell. Kettir ráðst ekki á menn nema hafa verið illa haldnir og misþyrmt að einhverjum. Greyskarnið!. Var í Eyjum á fyrir helgina að kenna og naut þessarar yndislegu veðurblíðu sem var á fimmtudaginn. Vonandi hafa öll hátíðarhöldin tekist vel um helgina þrátt fyrir leiðindaspá. Kveðja úr Þorlákshöfn.
Sigurlaug B. Gröndal, 12.5.2008 kl. 23:02
Sæll Þorkell minn.
Ekki heitir kötturinn "Árni Jhonsen".
Ég mátti til
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 13.5.2008 kl. 03:37
Er kötturinn nokkuð búin að bíta í þig Keli minn, fer ekki að koma tími á bloggfærslu frá þér .. *segi svona*
sumarkveðja í Eyjarnar *
G Antonia, 15.5.2008 kl. 02:26
Líkamsárás, segirðu? Var nema von að kötturinn yrði vitlaus ef svona mikið gekk á? Líkamsárásir eru venjulega ekki gerðar af mönnum sem er að öllu leyti með sjálfum sér?
Kannski fulliir vitlausir, eða dópaðir. Það getur gert hvert dýr brjálað að umgangast þannig 'slekti.' Mér finnst nú að það eigi fyrst og fremst að hugsa um velferð kattarins og taka hann af sínum óábyrgu eigendum og koma honum í fóstur annars staðar, eins og myndi verða gert ef lítið barn hefði þurft að horfa u líkamsárás á sínu heimil.
Það þarf að koma á fót kattaverndarnefnd eða Dýraverndarnefnd allstaðar þar sem gæludýr eru haldin, dæmi Barnaverndarnefnd, sem hefur eftirlit með því að dýrin búi við andlegt og líkamlegt öryggi á sinum heimilim.
Svava frá Strandbergi , 18.5.2008 kl. 14:00
Ég þori að veðja að þessir tveir hafa verið byrjaðir að munnhöggvast áður en líkamsárásin byrjaði, eða verið með aðra uppsteyt og kötturinn hefur orðið svona taugaveiklaður og ætlað að siða þa´til, eins og sjálfsagt var.
Svava frá Strandbergi , 18.5.2008 kl. 14:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.