AÐ VERA ALKAHÓLISTI.

herraslopslopppurdomu

 

Hér er Vogur

um Vog

frá Vogi

til Vogs.

 

Að vera á sjúkrahúsi er ekkert skemmtilegt.

Sérstaklega, þegar þeir sem þar dvelja eru með sjúkdóm,

sem leitt getur til dauða,  ef ekki tekst að hafa á honum hemil.

Gangandi daginn inn og út í sloppi merktum

"Eign Vogs" er hlutskipti þeirra, sem eru það lánsamir að komast

inn á sjúkrahúsið Vog, sem sérhæfir sig í meðferð sjúklinga,

sem verða alkahóli að bráð.


Samfélag "sloppafólksins" er lífsreynsla, sem engan lætur

ósnortinn að ég held, þar sem sjúklingarnir fá leiðsögn og hjálp

til þess, að takast á við Bakkus.


Fyrsta spor okkar alkanna er:

Við viðurkenndum vanmátt okkar gegn áfengi

og að okkur var orðið um megn

að stjórna eigin lífi.


Þakklæti mitt til þess fólks, sem starfar á sjúkrahúsinu Vogi

og veitt hefur mér hjálp á erfiðustu stundum lífs míns

verður seint fullþakkað.

 

Sá, eða sú,

sem aldrei tekur fyrsta glasið, eða hvað annað, sem fólk kemst í vímu

af  

þarf  að óttast það,

að verða alkahólisma að bráð.  


 

 

 

 

  

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sporin.Mæli með þeim vill alla

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 15.10.2008 kl. 15:58

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gangi þér vel vinur.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.10.2008 kl. 19:49

3 Smámynd: þorvaldur Hermannsson

sæll Keli. Eg er mættur þannig að nú máttu vara þig.Þegar 20-30 menn eru búrir að koma Íslandi á hausinn,þá er mér hugsað til geðsjúklingsins og alkahólistans sem stal súpupakkanum í 11 11 búðinni og var dæmdur í þriggja mánaða fángelsi fyrir ha ha ha Kv Valdi

þorvaldur Hermannsson, 15.10.2008 kl. 20:17

4 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Sæl verið þið og þökk fyrir að líta inn  til mín.  Þökk fyrir þína upplýsingar Þorvaldur, en ég hefi ávallt gert mér grein fyrir að spakmælið, sem segir: Þjófar, sem stela frá einstökum mönnum eru settir í járn og dýflissu, en þjófar á opinbert fé klæðast pelli og purpura. Kveðja.

Þorkell Sigurjónsson, 15.10.2008 kl. 22:12

5 Smámynd: Hilmir Arnarson

Sæll.  Gengur ekki allt eftir áætlun?

Hilmir Arnarson, 16.10.2008 kl. 00:01

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Sæll frændi, gangi þér vel í baráttunni við Bakkus.

Svava frá Strandbergi , 16.10.2008 kl. 15:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þorkell Rúnar Sigurjónsson

Höfundur

Þorkell Sigurjónsson
Þorkell Sigurjónsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...196_1252211
  • ...056_1245763
  • ...002_1245762
  • ...d_1_1245761
  • ...002_1245245

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 249667

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband