FURÐULEG VINNUBRÖGÐ Í VESTMANNAEYJU ?

 

ellidi_bajarstjori


Ég er varla búinn að sleppa puttunum af lyklaborðinu og

gleðjast yfir þeirri yfirlýsingu umhverfisráðs Eyjanna um bann við

lundaveiði í sumar,

 þegar sjálfur bæjarstjórinn dregur í land með þá ákvörðun.

Hverjum á að trúa og hverskonar hringlandi er þetta,

 ég spyr?

 

 

 


mbl.is Ekki ákvörðun um lundaveiðibann í sumar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

CAPS LOCK!!!!!!!!!!

Flóvent Máni (IP-tala skráð) 23.6.2009 kl. 18:44

2 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Það er búið að vera blása út vofveiflegar fréttir af lundanum núna í nokkur ár en það er ekki enn komin út skýrsla um málið og samkvæmt lausafréttum þá hefur stofninn minnkað um rúm 20% á nokkrum árum. 

Ég get ekki séð að það sé nokkur hætta á að veiðar skaði stofn sem telur milljónir fugla sérstaklega þegar litið er til þess að fækkunin er talin til minna fæðuframboðs.

Sigurjón Þórðarson, 23.6.2009 kl. 19:44

3 identicon

Sammála Sigurjóni.En hvenær er tekið mark á okkur Keli minn.

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 23.6.2009 kl. 19:48

4 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Ágæta fólk.  Man svo langt,  þegar menn sögðu fyrir nokkuð mörgum árum síðan,  að síldinni væri engin hætta búin af veiðum okkar á henni,  en því miður kom annað í ljós.. Eigum við að taka einhverja óþarfa áhættu með lundann?

Þorkell Sigurjónsson, 23.6.2009 kl. 20:08

5 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ekki veiddum við of mikið af loðnunni - það var farið nákvæmlega eftir ráðgjöfinni, en hún hvarf nú samt.  Síldin er komin aftur í miklum mæli eftir að sjór hlýnaði en hún hvarf þegar sjór kólnaði á sjöunda áratugnum. 

Sigurjón Þórðarson, 23.6.2009 kl. 21:33

6 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Sigurjón minn.   Ég hefi fylgst með lundanum hérna á heimalandinu í meira en hálfa öld og því miður er lundinn nær horfinn á sumum stöðum.  T.d. gat maður fyrir nokkrum árum síðan farið upp í stóra Klif, seinni part dags, þegar  suð-austan átt var og veitt allt upp í  eina "kippu" á tveimur tímum.  Núna sést ekki fugl fljúga  á þeim slóðum í dag, þ.e.a.s.  sunnan í stóra-Klifi.  Svona er þetta víðar hérna á heimalandinu, því miður. -  Ég vil að lundinn fái að njóta vafans og hann verði friðaður alfarið á þessu ári.

Þorkell Sigurjónsson, 23.6.2009 kl. 22:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þorkell Rúnar Sigurjónsson

Höfundur

Þorkell Sigurjónsson
Þorkell Sigurjónsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...196_1252211
  • ...056_1245763
  • ...002_1245762
  • ...d_1_1245761
  • ...002_1245245

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 249535

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband