21.1.2009 | 16:37
SKILUR GEIR SKILABOÐIN ?
Svona er Ísland í dag.
Vígalegur lögreglumaður tilbúinn til að lumbra á hverjum þeim,
sem sýnir andstöðu við ríkisstjórn og hennar
helsta merkisbera, Geir Haarde forsætisráðherra.
Þetta fer óneitanlega að minna á það, sem við
höfum lengst af verið áhorfendur af úti í hinum stóra heimi.
Ætli Geir átti sig á hvers vegna honum finnist sér vera ógnað?
Fellur stjórnin í dag, eða á morgunn?
Því fyrr því betra.
![]() |
Geir taldi sér ógnað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.1.2009 | 16:24
STJÓRNMÁLAFRÆÐINGUR SEGIR STJÓRNINA Í DAUÐATEYGJUNUM ?
Stjórnmálafræðingurinn Gunnar Helgi,
segir að aðeins kraftaverk geti bjargað
ríkisstjórninni.
Jafnvel að stjórnin lifði ekki af daginn í dag,
og ennþá minni líkur að hún lifi af vikuna.
![]() |
Mótmælt við þinghúsið á ný |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2009 | 13:34
STJÓRNIN ER EINS OG STRÚTURINN.
Jenný Baldursdóttir álítur að stjórnin sé fallin.
Ég segi bara;
"Mikil er trú þín kona".
Frá mínum bæjardyrum séð er birtingarmynd
ríkisstjórnarinnar eins og Strúturinn,
þegar hætta steðjar að.
Hann stingur hausnum niður í sandinn og þykist ekkert
heyra né sjá.
![]() |
Fundað með flokksformönnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.1.2009 | 21:13
Ó HELGIR MANNKOSTIR ?
Reyndu ekki að telja þér trú um,
að innra manngildi þitt nái undirtökunum,
þrátt fyrir fas þitt.
Margur ágætismaðurinn hefur svelt sig í hel,
af því að hann hafði ekki vanið sig af
óviðfelldu viðmóti.
![]() |
|
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.1.2009 | 15:40
HÖSKULDUR NEI SIGMUNDUR KANNSKI BÁÐIR KOSNIR Á SÍÐUSTU STUNDU ?
Æ, æ ég ætlaði að setja hér inn stóra mynd af nýjasta
trúð landsins, en fyrir mistök setti ég mynd af
Sigmundi, æ, æ nú gerði ég aðra skissu.
Þetta er greinilega bráðsmitandi og ráðlegast að umgangast ekki
framsóknarmenn vegna hættu á smiti.
![]() |
Sigmundur kjörinn formaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.1.2009 | 18:33
HÆ, ÉG ER FRAMSÓKNARMAÐURINN ?
Hæ !
Ég er maðurinn
hinn eilífi framsóknarmaður
án takmarks og tilgangs.
Ég skal sýna þér framsóknarmann
feitan og gljáandi
af góðlátri heimsku.
Ég vil horfa á þig þjást og kveljast
frá eilífð til eilífðar
undan oki framsóknarmanna.
Ég er maðurinn,
hinn uppþornaði samfómaður
án takmarks og tilgangs.
![]() |
Heim í heiðardalinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.1.2009 | 17:36
BLEKKINGAR, SVIK, SPILLING OG SVÍNARÍ.
Í einfeldni okkar s.l. 15-20 ár,
höfum við lifað í þeirri blekkingu að hér væri besta menntakerfi í
heimi og besta heilsugæslan, hæstu launin og hér væri endalaus
velmegun.
Þegar listar hafa verið birtir í heiminum yfir spillingu þá oftar en ekki
höfum við verið mæld sem þjóð með litla eða enga
spillingu.
Það er vandinn í hnotskurn.
Spillingin og þögnin, sem við höfum staðið saman um,
að uppræta ekki.
Nú hefur hún lagst ofan á okkur með öllum sínum þunga,
eða afleiðingar hennar og við getum okkur hvergi hreyft.
Upplýsingar síðustu daga eru óhugnanlegar.
Upp á yfirborðið silast hægt og rólega sannleikurinn og sorinn,
sem hefur fengið að grassera í svo langan tíma.
Sárast er að sjá og svíður mest er
óttinn.
Ótti fólksins við að segja skoðanir sínar.
Vald spillingarinnar er svo sterkt og þrúgandi, að venjulegt fólk
stendur hjá og horfir á, eða lokar augum og eyrum.
Fólk slær jafnvel skjaldborg um spillinguna eins og gerðist í VR,
en stjórn og trúnaðarráð lýsti yfir stuðningi við formann félagsins,
sem stóð upp fyrir axlir í spillingunni miðri en neitar allri sök.
Í bönkunum er spillingin og hún fær að vera þar í friði vegna þess
að menn þora ekki að segja frá af ótta um eigið skinn,
atvinnu og framtíð.
Nýjasta dæmið er 25 milljarðar, sem fluttir voru á einkareikninga
þriggja lykilmanna hjá KÞ-banka daginn fyrir hrun bankanna.
Jafnvel stjórnmálamennirnir hringja í auglýsta ræðumenn á
mótmælafundum og biðja þá um að tala gætilega.
Tala ekki um sannleikann af því að hann þolir illa dagsljósið.
Og ekki síst að skaða ekki sjálfan sig til frambúðar með
auglýsingu um spillt vald.
Þyrlu flugmenn verða að sækja rétt sinn gegn ofurvaldi
og ráðríki.
Jafnvel inn í litlu bæjarsamfélögin horfir maður upp á það,
að einkavinirnir og ættartengslin og ekki hvað síst, rétti
litur á flokksskírteininu ræður þar öllu.
Dæmin eru óteljandi.
Það er engu líkara en berja eigi allar óæskilegar skoðanir niður,
sem ekki henta valdinu.
Það er engu líkara en að þeir sem valdið hafa noti það grimmt
og óspart í anda vondra einræðisherra.
Grátlegt er ástandið og á eftir að versna,
ef ekki verður spornað við þessari þróun,
þessari þögn.
ARNÞÓR SIGURÐSSON og Grímur!
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.1.2009 | 14:16
KRAFTAVERKAMAÐUR EYJANNA ?
Að gefnu tilefni er spurning hvort ekki megi setja
kraftaverkamann (superman) Eyjanna í málið.
Það er að segja, að við Eyjamenn fáum almennilegt og öruggt
skip til að annast farþegaflutninga milli Lands og Eyja.
Þegar ég tala um kraftaverkamann þá á ég við
Elliða bæjarstjóra og af hverju?
Í Leiðar Moggans í morgunn er talað um, að sumir
sveitastjórnarmenn sjái litla þörf fyrir sparnað í rekstri
á heilsugæslu með sameiningu, þeir vilji halda áfram rekstri
eins og ekkert hafi í skorist.
Og áfram segir í Mogga-Leiðaranum:
Elliði Vignisson bæjarstjóri í Vestmannaeyjum,
segist þannig vonast til að sama fé geti fylgt
Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja og nú sé ráðgert í fjárlögum.
Við höfum fullan skilning á því að ríkið þurfi að skera niður
en þenslan hefur ekki verið í Eyjum, segir Elliði.
- Eru menn ekki farnir að átta sig á heildarmyndinni?
Bæði ríkissjóður og sveitarfélög munu glíma við
gífurlegan fjárhagsvanda á næstu árum.
Tekjur hrynja og skuldirnar hafa rokið upp.
Sparnaður og niðurskurður er eina leiðin-eða þá að þyngja
byrðar skattgreiðanda.
Eru kraftaverkamenn við stjórn í sveitarfélögum?
Menn sem geta hafnað ávinning af sameiningu stofnanna,
en samt sparað annars staðar það fé, sem upp á vantar-
eða náð því af skattgreiðendum hljóðalaust?
Reynslan af rekstri flestra sveitarfélaga undanfarin ár benda ekki til
þess,
að þar séu sérstakir fjármálasnillingar á ferð.
![]() |
Spyrjast fyrir um ástand Herjólfs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.1.2009 | 00:12
GRIMMDIN BLÓMSTRAR Á GAZA-SVÆÐINU.
Hvernig í ósköpunum má vera,
að mennirnir eru svona grimmir ?
Ég hefi ávallt haldið það, að Gyðingar væru hin útvalda
þjóð Drottins.
Nú hafa Gyðingar í Ísrael opinberað sig,
sem illmenni og morðingjar.
Hver hefur gefið þeim leyfi
til að taka annarra líf.
Halda menn kannski að Drottinn hafi skrifað uppá
einhverskonar leyfis bréf fyrir Gyðinga til að myrða og lemstra annað
fólk ?
Nei örugglega ekki.
Ég trúi því,
að Drottinn hafi hina mestu skömm á því
illvirki,
sem
"hin útvalda þjóð"
aðhefst á Gaza-svæðinu í kvöld.
![]() |
Landher Ísraels inn á Gaza |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
2.1.2009 | 17:50
KOMMÚNISTA DRULLUSOKKAR ?
Félagi þessa manns, sem er í box stellingunum,
sagði það sem segja þarf um
þá sem voga sér að mótmæla
ört vaxandi ófremdar ástandi í okkar þjóðfélagi og það er,
kommúnistadrullusokkur,
mótmælendur eru hvorki meira eða minna en
kommúnista drullusokkar.
Ég vissi þetta alltaf !
![]() |
Mótmælendum ógnað á gamlársdag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Um bloggið
Þorkell Rúnar Sigurjónsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
ibvfan
-
fosterinn
-
maggibraga
-
solir
-
georg
-
gretaro
-
sigthora
-
kjartanvido
-
eyglohardar
-
rustikus
-
svenko
-
eyjapeyji
-
kokkurinn
-
valdivest
-
disin
-
smarijokull
-
kristleifur
-
gudnihjoll
-
sjonsson
-
nautabaninn
-
prakkarinn
-
bergen
-
icekeiko
-
asthildurcesil
-
joiragnars
-
hallarut
-
annabjo
-
jensgud
-
jonaa
-
svarthamar
-
kaffi
-
stormsker
-
olinathorv
-
zunzilla
-
gbo
-
steinibriem
-
siggith
-
ea
-
svanurg
-
tannibowie
-
valdimarjohannesson
-
martasmarta
-
gullfoss
-
elnino
-
sunna2
-
thjodarskutan
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.7.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 250882
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar