Færsluflokkur: Dægurmál
1.9.2009 | 19:02
ÓHRÆSIÐ.
Steingrímur J. segir ábyrgðarlaust að borga ekki af ört hækkandi lánum
landsmanna og viðskiptaráðherra og forsætisráðherra taka í sama
streng.
Hvað álítur vinstri stjórnin, ríkisstjórn hins vinnandi manns,
að við séum?
Dráttar klárar sem hægt er að píska áfram fram í rauðan dauðann?
Nei, nú er nóg komið.
Fólk fær hvergi skjól eða hjálp undan drápsklyfjum lána,
sem sífellt hækka og tútna út eins og púkinn á fjósbitanum forðum
daga.
Oftar en ekki kemur mér kvæði Jónasar Hallgrímssonar,
ÓHRÆSIÐ í hug,
þegar fólkið sem komið er í þrot með lánin sín og hvorki bankar né
ríkisstjórnin "okkar" hreyfa hvorki legg né lið því til hjálpar.
EN í kvæði Jónasar segir frá rjúpunni,
sem flúði undan fálkanum og í skjólið,
sem hún hélt hún fengi í fangi konunnar í dalnum.
"En gæðakonan góða (ríkisstj.)
grípur fegin við
dýrið dauðamóða-
dregur háls úr lið;
plokkar, pils upp brýtur,
pott á hlóðir setur,
segir happ þeim hlýtur
og horaða rjúpu étur.
Háskalegt að borga ekki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.8.2009 | 21:19
AÐ EIGA SÉR DRAUM.
Þar sem ég sit nú hérna við tölvu sonar míns í íbúð sem er
steinsnar frá inngangi að KR-vellinum verður mér hugsað til leiksins,
sem háður var í gær síðdegis.
Ekki er ætlunin að fjölyrða neitt honum viðvíkjandi, nema að ég eins
og allir þeir fjölmörgu stuðningsmenn og konur, sem mættu
á völlinn vorum auðvitað langt í frá sátt við úrslit leiksins þrátt
fyrir að liðið okkar, ÍBV var að sýna fanta góðan leik.
Ég tek heils hugar undir með vini mínum Heimir þjálfara, þegar hann
sagði eftir leikinn. "Við þyrftum engan að hræðast léki ÍBV liðið eins og
það gerði á KR vellinum".
Stemmingin hjá stuðningsmönnum á þessum leik svo og tilþrif
Stalla Hú var það sem fékk mig til að hugsa tíu fimmtán ár aftur í
tímann, þegar líf og fjör var fyrir hvern einasta leik, sem ÍBV
háði hérna á fasta landinu.
Mín von er, að stuðningsfólk ÍBV á fasta landinu láti ekki deigan síga,
þrátt fyrir, að allt fór ekki sem skyldi á leiknum í gær.
Næsti leikur er heima í Eyjum á laugardag og þar verður bloggari
mættur til hvatningar liðinu sínu, ÍBV.
Takmarkið er að vera meðal bestu liða á Íslandi í ár og
Íslandsmeistarar eftir tvö þrjú ár.
Það má svo sem fylgja hér með, að mér vitnaðist í draumi,
að ÍBV muni sigra Val.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.8.2009 | 17:32
AÐ VERA VEL OG MIKILS MEGANDI, EN GREIÐA LÁGA SKATTA.
Eins og flestir, sem rekast inn á síðuna mína hafa kannski tekið eftir
hefir bloggari dvalið erlendis um hálfs mánaðar skeið.
Það sem mesta athygli mína vakti, þegar heim kom og
ég fletti vikublaðinu "FRÉTTIR" var,
"gluggað í skattskrána".
"Meðallaun 100 þúsund krónur"
og þar undir er margt ágætis
fólk.
Mesta undrun mína vakti þó að nokkrir voru þar, sem teljast vera
bæði vel og mikils megandi í þessu bæjarfélagi, en virðast alls
ekki hafa fyrir salti í grautinn.
Þetta góða fólk sýnist mér dags daglega heiðarlegt í framan svo
bágt er að hugsa sér það,
að hér fari ekki frómar manneskjur, þegar þær gera
skattaskýrsluna sína.
Kannski ætti framfærslufulltrúi bæjarins að láta málið til sín taka
og hlaupi undir bagga?
Allavega er bloggari þessarar greinar tilbúinn að rétta fram
nokkrar krónur, því ekki þarf hann að kvarta,
með fjórfalt meiri laun en þetta láglauna
stóreignafólk.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.8.2009 | 14:30
VERDA KOSNINGAR TIL ALTHINGIS Í HAUST ?
Segjum svo að Icesave samningurinn verði ekki sathykktur á
althingi Íslendinga.
Hverslags staða kemur thá upp í framhaldinu og á ég thá við
ríkisstjórnina sem nú situr?
Hrökklast hún frá og mynduð verði
Tjódstjórn,
eða VG, Framsókn og Sjálfst.flokkur reyni thá samstarf?
Ekki sé ég thad gerast að Samfylking og Sjálfst.flokkur nái saman.
Kannski verður stjórnarkreppa og efnt verði til kosninga til
althingis á nýjan leik?
Blikur eru á lofti, sem allar eru válegar,
en versti kostur stöðunnar er sennilega að samthykkja
hinn banvæna Icesave samning.
Efast um alvöru þingmanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.8.2009 | 09:10
RÚSSARNIR KOMA, RÚSSARNIR KOMA ?
Hversvegna í ósköpunum fáum við ekki Rússana
til að sinna loftrýmiseftirliti fyrir okkur.
Their eru hér hvort sem er daglegir gestir
yfir landinu.
Thad myndi spara milljarða, sem við eydum
í thennan ótharfa, sem eftirlitið er,
og Rússarnir gera thetta ábyggilega fyrir ekki neitt.
Birnir yfir Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.8.2009 | 12:01
ÍHUGUN DAGSINS.
Heimsins lystisemdir einar njörva thig niður.
Frelsið thitt nýja er undir thví komið
hve léttilega thér tekst að hefja thig yfir jarðneska hluti.
Stýfðir vængir geta vaxið að nýju.
Brotnir vængir geta endurheimt meiri kraft og
fegurð en áður var.
Ef thú vilt,
geturðu öðlast lausn og frelsi.
Kókaín og amfetamín í Eyjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
1.8.2009 | 13:57
Í SÓL OG SUMARYL HÉRNA Í ÖSTERSUND.
Heja allir í Eyjum.
Thad er líka alveg frábært vedur hérna
í Östersund og margt fólk á ferli,
enda mikil hátíð með mússik og tívolí.
Hitinn hérna er 20* á celsíus.
Bið að heilsa öllum í
Vestmannaeyjum og góða
skemmtun.
Blíða í Eyjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
1.8.2009 | 09:10
ÍSLENDINGAR, ÁDUR VAR THÖRF, EN NÚ NAUDSYN.
Hver önnur en blessuð konan hún Eva ätti að hafa
yfirsýn yfir hlutina?
Maður spyr sig hvort liðsmenn ríkisstjórnarinnar lesi
greinina hennar Evu?
Ég hvet alla sanna vinstrimenn til að vinna hvern og einn gegn
samthykkt Icesave og vinna að thví að draga sig
út úr bjarnarfaðmi AGS.
Ef ekki verdur hugarfarsbreyting innan ríkisstjórnarinnar
gagnvart okkar erfiðu málum,
thá hvet ég til alvöru uppreisnar fólksins í landinu og við
steypum núverandi ríkisstjórn.
Stöndum ekki undir skuldabyrði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
31.7.2009 | 18:06
GOTT AD KOMA Á THJÒDHÁTÍD ?
Tilbreytingar taldi thörf
til ad verda ei nunna.
Í Vestmannaeyja-djammid djörf
dreif hún sig hún Gunna.
Aldrei áður jafn margir á þjóðhátíð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.7.2009 | 21:12
TRÚIN FLYTUR FJÖLL ?
Brjóttum ekki heilann um rádgátur
sem vid getum ekki leyst.
Vera kann ad lausnirnar verdi okkur ekki
birtar fyrr en eftir ad vid erum öll.
Ég trúi á tvennt í heimi
tign sem ädsta ber
Ilitshi Lenin í alheims geimi
ÍBV í hjarta mér.
Til minningar um fallinn félaga.
Út yfir gröf og dauða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Þorkell Rúnar Sigurjónsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- ibvfan
- fosterinn
- maggibraga
- solir
- georg
- gretaro
- sigthora
- kjartanvido
- eyglohardar
- rustikus
- svenko
- eyjapeyji
- kokkurinn
- valdivest
- disin
- smarijokull
- kristleifur
- gudnihjoll
- sjonsson
- nautabaninn
- prakkarinn
- bergen
- icekeiko
- asthildurcesil
- joiragnars
- hallarut
- annabjo
- jensgud
- jonaa
- svarthamar
- kaffi
- stormsker
- olinathorv
- zunzilla
- gbo
- steinibriem
- siggith
- ea
- svanurg
- tannibowie
- valdimarjohannesson
- martasmarta
- gullfoss
- elnino
- sunna2
- thjodarskutan
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 24
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar