ER SPAUGSTOFAN AÐ STOFNA ÁHUGAMANNAFÉLAG Í EYJUM ?

 

 

520487

 

Samkvæmt fréttum er fyrirhuguð stofnun félags,  sem verja mun öruggt

eignarhald sægreifanna á fiskinum í hafinu.

Bloggvinur minn,  Jóhannes Ragnarsson bloggar ansi athyglisvert blogg um

þetta fyrirhugaða fyrirbæri og með hans leyfi

birtist það hér með:

 

SPAUGSTOFA ANDLEGRA AUÐNULEYSINGJA:

Nú berast þær fréttir úr Vestmannaeyjum,  að þar hafi verið stofnað félag

grínista þar sem inntökuskilyrðið virðist vera að hafa greind vel undir meðallagi.

Markmið þessa ágæta félags er að stuðla að því að mafíustarfsemi fái að viðgangast

áfram óbreytt í sjávarútvegsmálum.

Sagt er að félag þetta sé "þverpólitískt",  hver fjandinn sem það nú er,  en samt tekið

fram að ungir sjálfstæðismenn séu meðal stofnenda.

Það kemur ekki á óvart að svokallaðir "sjálfstæðismenn" fari fyrir svona

kjánafélagsskap,  enda er Sjálfstæðisflokkurinn ekki stjórnmálaflokkur í þeirri

merkingu  sem almenningur leggur í það orð,  heldur samansúrruð  glæpasamtök

sem meðal annars unnu sér til frægðar nýverið að leggja efnahag þjóðarinnar í

rúst með glæpsamlegum aðförum.

Það er broslegt í meira lagi,  að hið nýstofnaða varnarlið gjafakvótaþega og mafíósa

skuli bera það á borð fyrir fólk,  að svokölluð fyrningarleið sé aðför gegn

landsbyggðinni,

eftir að kerfið,  sem hinir þverpólitísku elskhugar þess vilja vera með í öllum ráðum,

hefur rústað fjölda sjávarbyggða allt í kringum landið.

Ennfremur segjast þessir misheppnuðu grínistar í Eyjum að þeir vilji alls ekki að

misvitrir stjórnmálamenn,  fjölmiðlamenn,  bitrir útgerðarmenn (gjafakvótaþegar

og erfingja þeirra eru þeir einir sem hafa vit á sjávarútvegsmálum) afnemi

fiskveiðistjórnunarkerfi sem Hannes Hólmsteinn,  Ragnar Árnason og

Magnús Kristinsson segja að sé það langbesta sem til er í heiminum.

Hinsvegar virðast labbakútarnir í þessu nýstofnaða kvótavinafélagi ekki hafa frétt

af því ennþá,  að 75-80% þjóðarinnar hefur skömm á kvótakerfinu og vill afnema það.

Og ekki virðast umræddir labbakútar hafa hugmynd um  það heldur,

að það er þessi sama þjóð,  sem á fiskinn í sjónum

en ekki örfáir

gjörspilltir gjafakvótaþegar.

Hvort á maður heldur að hlægja eða biðja Guð að hjálpa mönnum,

sem tala um misvitra stjórnmálamenn en eru ekki einu sinni misvitrir sjálfir,

heldur fávitar?


 


mbl.is Félag gegn fyrningarleið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þorkell Rúnar Sigurjónsson

Höfundur

Þorkell Sigurjónsson
Þorkell Sigurjónsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...196_1252211
  • ...056_1245763
  • ...002_1245762
  • ...d_1_1245761
  • ...002_1245245

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 249601

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 56
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband