15.4.2008 | 21:46
ÞEGAR FÓLK ER KALLAÐ HRYÐJUVERKAMENN.
Hvað dettur fólki í hug þegar einhver er kallaður
hryðjuverkamaður?
Jú, auðvitað Bin Laden.
Í morgunn er bloggari síðunnar ásamt vinnufélaga vorum við vinnu
okkar, átti einn af þekktari kaupmönnum þessa bæjafélags leið
fram hjá okkur.
Við buðum góðan daginn og spurðum svo hvað væri að frétta?
Lítið varð um svör, þannig að ég spyr í framhaldinu, hvort hann sé
ekki búinn að setja nafn sitt á undirskriftarlistann, sem í gangi sé
gegn byggingu Bakkafjöruhafnar og læt það fylgja að ég og vinnufélagi
minn séum bæði búin að skrifa á þann lista.
Þá leit þessi ágæti kaupmaður háalvarlegur á mig og sagði,
að mér virtist í fúlustu alvöru:
þið eruð hryðjuverkamenn.
Hvorki meira né minna vorum við í hans augum, samborgarar hans
hryðjuverkamenn, eða með öðrum orðum glæpamenn fyrir það
eitt, að hafa skrifað undir mótmæli gegn fyrirhugaðri
byggingar hafnar við
Bakkafjöru.
Það finnst mér nú ansi langt gengið, þegar menn afgreiða heiðarlegt
fólk á þennan hátt til varnar sínum veika málstað.
að kaupmaðurinn orðljóti er sannur stuðningsmaður frjálshyggju og
lýðræðis og þess vegna mér alveg óskiljanlegt,
að hann álíti þá sem honum eru ekki sammála, ótýnda glæpamenn.
En að lokum þetta:
Til er jarðneskt vald,
sem er sterkara en öll konunga-og keisaravöld til samans,
það er:
skoðanafrelsi almennings.
Um bloggið
Þorkell Rúnar Sigurjónsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- ibvfan
- fosterinn
- maggibraga
- solir
- georg
- gretaro
- sigthora
- kjartanvido
- eyglohardar
- rustikus
- svenko
- eyjapeyji
- kokkurinn
- valdivest
- disin
- smarijokull
- kristleifur
- gudnihjoll
- sjonsson
- nautabaninn
- prakkarinn
- bergen
- icekeiko
- asthildurcesil
- joiragnars
- hallarut
- annabjo
- jensgud
- jonaa
- svarthamar
- kaffi
- stormsker
- olinathorv
- zunzilla
- gbo
- steinibriem
- siggith
- ea
- svanurg
- tannibowie
- valdimarjohannesson
- martasmarta
- gullfoss
- elnino
- sunna2
- thjodarskutan
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 250244
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll Keli,
Þar sem ég var staddur í íþróttamiðstöðinni í morgun, hitt þig reyndar ekki,fékk þó sting í hjartað, ef einhver hefur séð kallinn og ég líka kaupmaður,reyndar ekki sá virðulegasti.Þú ættir nú að nafngreina "kaupmanninn"svo okkur hinum líði betur,reyndar er ég ekki búinn að skrifa undir listann, og reikna ekki með að skrifa undir, því ég vona að bakkafjöruhöfn reynist okkur samgöngubót!
með Vöruvals kveðju.
Ingimar H Georgsson "kaupmaður"Vöruval
Ingimar H Georgsson (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 23:22
Vertu óhræddur Ingimar minn þú áttir þarna engan hlut að máli það upplýsist hér með. Kveðja.
Þorkell Sigurjónsson, 15.4.2008 kl. 23:48
Sæll Keli minn.
Maður skal alltaf gæta þess hvað útaf munni mans kemur,því ORÐ ERU ÁBYRG.
Er ekki allveg inní deilum þessum, en gangi þér vel,KALLINN MINN.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 04:37
Skll keli,Mig grunar að ónefndur kaupmaður versli við Strandvesin.kv
þorvaldur Hermannsson, 16.4.2008 kl. 13:03
Sæll Þorkell, ég skal nú segja þér það að svipað dæmi fékk ég hjá syni kaupmans í dag, bara vikilegur æsingur yfir því að ég væri búin að skrifa undir listann hjá Magnúsi, ég hef grun um að ég hafi verið staddur inn í sjoppunni hjá þessum dómharða kaupmanni þegar sonurinn og ég ræddum um samgöngur.
Helgi Þór Gunnarsson, 16.4.2008 kl. 22:11
Ha ha.Sjoppu eigandi, mig grunaði það.kv
þorvaldur Hermannsson, 16.4.2008 kl. 22:40
Ein besta grein sem hefur komið í Fréttum er í blaðinu í dag. Greinin er eftir Grím Gíslason vélfræðing, ég vil endilega benda ykkur á að lesa hana, hún á svo sannarlega rétt á sér í öllu þessu rugli sem í gangi er í dag.
Stöndum saman um framtíð Vestmannaeyja og afkomenda okkar og sjáum til þess að það verði hægt að búa hér í framtíðinni.
Kær kveðja.
Pétur Steingríms.
Pétur Steingríms. (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 23:42
Sæl verið þið öll. Tek undir það sem þú segir Pétur, en þá verður bæjarstjórinn að taka sig á. Hann hefur ekki sýnt það með því sem hann lætur eftir sér hafa, að hann sé bæjarstjóri allra Vestmannaeyringa. Hann talar um, að við sem leyfum okkur að mótmæla arfa vitlausri framkvæmd, sem enginn raunverulega veit hvernig tekst til um, að við veifum röngu tré og séum með fjandann sem veggskraut, sjálfsagt út um allan bæ og séum að villa um fyrir fólki í öryggisþættinum, þegar sýnt er á myndbandi hvernig Lóðsinum reiddi af við Bakka fjöru. Nei þetta er ekki trúverðugur bæjarstjóri sem lætur svona og ekki líklegur til, að sameina okkur um eina framkvæmd í samgöngumálum okkar Eyjamanna..
Hann Elliði ætti að skammast sín og byrja strax á morgunn, að biðja allt það fólk afsökunar sem skrifaði undir "ströndum ekki". Kveðja.
Þorkell Sigurjónsson, 17.4.2008 kl. 00:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.