FLAUTANDI ÞINGMANNSEFNI EYJAMANNA.

 

 

Einar og Þóbergur
Þórbergur og Einar ríki.

 

 

 

 

 

Í bókinni,  "Fagur fiskur í sjó",  segir Einar ríki Sigurðsson frá kynnum sínum af,

Hjalta Jónssyni betur þekktur,   sem Eldeyjar-Hjalti.

M.a.  segir Einar frá því,   þegar Hjalti vildi verða þingmaður hérna í Eyjum:

 

 

 

Hjalti bauð sig eitt sinn fram til þings í Vestmannaeyjum.

Þá var hann togaraskipstjóri.

Hann lét þá gera þann umbúnað á eimpípu skipsins,  að hún gat blásið ýmis lög.

Þegar Hjalti renndi inn í höfnina í Eyjum,  lét hann leika á flautuna nokkur

ættjarðarlög,  svo sem "Ó fögur er vor fósturjörð",   Eldgamla Ísafold" og fleiri,

og skundaði síðan á framboðsfund í Gúttó.

Ekki dugði þetta þó til að fleyta Hjalta inn á þingið og ekki heldur ræður hans og

vinafjöldi í Eyjum.

 

 

Jón Magnússon,  síðast forsætisráðherra,  hafði verið þingmaður

Vestmannaeyinga frá 1902 til 1913,  en var nú í kjöri í Reykjavík.

Karl Einarsson sýslumaður bauð sig fram á móti Hjalta og hlaut kosningu.

Ekki voru kosningabombur þá óþekkt bellibrögð.

Af Hjalta var sú saga látin berast um bæinn,  að hann hefði verið að veiða í

landhelgi við Þjórsárósa kosningadagsmorguninn.

 

 

 

 

 

 

Sannarlega sniðugt uppátæki hjá karlinum,  þetta með eimpípuna,

og hvort hér sé ekki komið upplagt snilldarbragt fyrir frambjóðendur framtíðarinnar.

Menn láti "mixa" umbúnað á flautuna á bíl sínum,  auðvitað þá helst að það sé  jeppi,

og þannig útbúnir færu þeir svo um götur Vestmannaeyjabæjar,

og spiluðu á flautuna,

nokkur vinsælustu lögin hverju sinni !


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þorkell Rúnar Sigurjónsson

Höfundur

Þorkell Sigurjónsson
Þorkell Sigurjónsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...196_1252211
  • ...056_1245763
  • ...002_1245762
  • ...d_1_1245761
  • ...002_1245245

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 16
  • Sl. sólarhring: 19
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 249556

Annað

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband