18.6.2011 | 13:02
BETEL Í GAMLA DAGA.
Fyrir löngu, löngu síðan kom maður í þetta hús Hvítasunnusafnaðarins,
eða eins og við krakkarnir sögðum,
í gamla daga,
"að fara í Betel"
Fallegar sögur af uppreisnarmanninum Jesú voru sagðar og það sem
mestu máli skipti,
að fá þessar glerfínu "Biblíumyndir".
Söngurinn var fallegur og og ljúfur,
og kryddið á samkomum var, þegar sjálfur æðstipresturinn, Einar hóf upp rödd
sína og predikaði.
Honum lánaðist vel að ná til ungu hlustendanna,
en ef Einar Gíslason og Jesús hefðu krufið þjóðfélagsmálin til mergjar,
leyfi ég mér að efast um, að þeir hafi verið þar sammála.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.6.2011 | 09:34
FYRIR 50 ÁRUM VAR VINSÆL DANSHLJÓMSVEIT Í EYJUM ?
Tacton-sextettinn ásamt söngkonu.- Efri röð frá vinstri:
Einar, Gunnar, Gerða, Ellert.
Fremri röð: Hannes, Örlygur, Sigurjón.
Í umsögn um þessa ágætu hljómsveit, sem var stofnuð fyrir hálfri öld síðan,
hér í Vestmannaeyjum segir, að hún sé tvímælalaust ein sú albesta,
sem við Eyjabúar höfum átt völ á um árabil.
Hjómsveitin hóf að leika í Samkomuhúsinu í október s.l. og er ráðin þar til 11. maí n.k.
Í viðtali við Hannes Bjarnason meðlim hljómsveitarinnar kemur fram,
að hann er 17 ára, leikur á sóló gítar og er stjórnandi hljómsveitarinnar,
Hannes sagði, að Tacton sextett hefði verið stofnaður fyrir rúmu ári síðan,
en að nú væru aðeins tveir eftir að hinum upphaflegur stofnendum.
Hinir hefðu smám saman helst úr lestinni.
Hannes var spurður hve oft í viku þau léku fyrir dansi í Samkomuhúsinu.
Hann sagði að það væri að jafnaði 2 - 3 kvöld í viku,
annars færi það mikið eftir því hvort landlegur væru.
Hannes sagði að hljómsveitin kappkostaði að vera með ný og vinsæl lög á
dagskrá sinni, enda væri það eitt aðalatriðið,
til að halda vinsældum.
Hljómsveiti æfði að jafnaði 2 til 3 í viku, sagði þessi hressi stjórnandi
Tricon-sextettinn,
að lokum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.6.2011 | 13:25
Í TILEFNI DAGS SJÓMANNA.
Hér má sjá þann sómadreng, Ella-Berg.
Við byrjuðum á línuvertíðinni frá Sandgerði, og höfðum aðstöðu í verbúð hjá
Haraldi Böðvarssyni & Co.
4 menn voru í landi og komu þeir með beitta línuna um borð, en 7 menn voru
svo á sjónum, sem kallað var
Landmenn og sjómenn unnu svo að því að ganga frá aflanum um borð, en síðan var
siglt til Reykjavíkur til losunar.
Er netavertíðin hófst í Vestmannaeyjum, var haldið til Eyja á netavertíðum þar lauk
um 10. maí.
Aflahrotan var þá vanalega um páskaleytið, m/s Ágústa var 37 tonn og einn stærsti
báturinn í Eyjum, árið 1929 og flaut ekki að bryggju með fullfermi, enda umsetið
hvert bryggjupláss og enginn tími mátti fara í bið, svo hægt væri að draga netin
næsta dag.
Við komum með fullan bátinn í lest og á dekki í um það bil heila viku,
og lá þá Ágústa útá legunni, og var skipað upp í uppskipunarbáta sem við svo
þurftum að losa úr upp á bryggju.
Við áttum netin nokkru fyrir vestan Þrídranga, og var keyrslan í land ekki nema
1-1 1/2 klukkutími, og hvíldin því ekki meir en 3 til 4 tímar á sólahring á meðan
á aflahrotunni stóð.
Þá kemur að því, að aflahluturinn fyrir línu og netavertíð,
árið 1929 varð 760. oo krónur, sjö hundruð og sextíu kr.
Fimmtíu árum seinna,
árið 1979 kostaði ein skósvertudós þessa sömu upphæð.
Ein skósvertudós árið 1979 á verðgildi vertíðarhluta ári 1929.
Hér er greinilega tími páskahrotunnar í Eyjum, fyrr á árum.
Glaðhlakkalegir sjómenn, þeir Grétar og Hafsteinn .
Sjómenn,
til hamingju með daginn.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.6.2011 | 14:44
JÓNAS HALLGRÍMSSON Í ALLT ANNARRI MYND !
Enginn þarf að velkjast í vafa hver þessi maður
er, Jónas Hallgrímsson ljóðskáldið ástsæla.
Þegar ég var ungur og var í skóla, þótti sjálfsagt að læra kvæðin hans Jónasar.
Hvernig maður hann var í raun fór nú fyrir ofan garð og neðan, nema myndir hér á
blogginu var eina vísbending um útlit mannsins.
Það sem mér varð fljótlega ljóst, að Jónas átti við áfengisvandamál að stríða,
var alkahólisti eins og við segjum í dag.
Samkvæmt lýsingu sem ég fann um Jónas, var hann meðalmaður á hæð og
limaður vel.
Vel réttur í göngu, herðamikill, nokkuð hálsstuttur og höfuðið heldur í stærra lagi.
Jarpur á hár og með karlmannlegt andlit, beint nef, kinnbein hans há,
munnurinn fallegur og varir mátulega þykkar.
Stóreygur og móeygur.
Þannig hljóðar lýsing á Jónasi Hallgrímssyni og má af henni sjá, að maðurinn hefur
verið hinn vörpulegasti.
Í kvæðinu "Ferðalok" segir Jónas frá ástinni sinni og man ég það svo vel,
að kennarinn minn í barnaskóla var mjög hrifinn af kvæðinu.
Það eitt man ég úr kvæðinu og segir;
"Greiddi ég þér lokka
við Galtará
vel og vandlega;
brosa blómavarir,
blika sjónstjörnur,
roðnar heitur hlýr."
Þannig var Jónas ofar öllu öðru og einnig veraldavafstri og ég tala nú ekki um ástina,
sem hann orti svo yndislega um.
Því var það að mig rak í rogastans, þegar ég las bréf, sem stílað var á
skólafélaga hans, Stefán Gunnlaugsson bæjar og landfógeta.
Þar leitar Jónas á náðir fógetans og biður hann ásjár í vandræðum sínum.
Fer tilskrifið hér á eftir:
Þú þekkir þessa kerlingu - Þóra heitir hún, vitlaus að ég held, og hefur brókarsótt
og situr um mig nótt og dag, úti og inni, svo ég hef aldrei frið og er hér eins og í helvíti.
Nú get ég svarið við æru mína og við guð, ef þess er krafist, að ég hef aldrei í orði
né verki gefið henni tilefni til þessarar aðferðar, en ég hef heyrt, að meðan ég lá veikur
hafi hana dreymt ég myndi lifna við aftur, og verða seinni maðurinn sinn.
Þetta er eins og þú sérð sjálfur óþolandi; hún hafði hægt á sér um stund,
en er nú aftur allt í einu orðin meir en óþolandi; ég verð að þekja fyrir gluggann minn,
svo að ég skuli ekki allan daginn þurfa að sjá í þessa svívirðulegu og
afgömlu pútuaugu. - Ég vildi þú værir stundarkorn kominn í minn stað,
svo þú gætir séð hversu réttlátt það er,
að pólitíið trassar fyrstu skylduna sína; að vernda saklausa borgara.
Guð veit,
ég er saklaus, og hef nú orðið að þola þessa svívirðu á þriðja ár.
En þolinmæðin er þrotin;
ef ég í bræði minni rek stein eða spýtu út um rúðuna í kjaftinn á henni, þá verð
ég sektaður.
Þinn Jónas Hallgrímsson.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.5.2011 | 09:37
MAÐURINN MEÐ KEÐJUSÖGINA ?
'
Þetta er rétti baráttuandinn.
Með þessa grímu veit ég að Tryggvi mun skora tvö til þrjú mörk á sunnudaginn.
Það munu allir víkja fyrir þessum kappa, engin spurning.
Finnst eins og ég hafi séð álíka leikara í bíómynd um daginn.
Held satt að segja að sá hafi verið með keðjusög í höndunum og sagað allt og alla í
sundur.
En auðvitað verður Tryggvi ekki með neina keðjusög á Hásteinsvelli í næsta leik,
en aftur á móti verður hann örugglega á skotskónum,
það er ég hundrað prósent viss um.
![]() |
Tryggvi kominn með grímu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 09:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.5.2011 | 18:11
KANNSKI ÚTGERÐARMENN OG AÐRIR GETI AF KARLI DUNGANON LÆRT ?
DUNGANON hirðskáld St. Kilda slær
hörputrummur.
Karl Einarsson,
greifi af Dunganon og hertogi af St. Kilda hefur verið um margt,
ansi skrautlegur "karakter".
Því var það,
að ég rakst á viðtal við greifann og fór það fram fyrir rúmlega sextíu árum
síðan.
Það sem vakti mesta athygli mína var það, hvernig lífið skyldi ganga á eyjunni
St, Kilda þar sem hann ætlaði að ríkja.
Það væri kannski ráð fyrir einhverja útgerðamenn, eða þá sem telja sig í dag eiga
undir högg að sækja, að þeir notuðu sér þann háttinn á, sem hertoginn af St. Kilda
vildi innleiða, ef menn hefðu þrekið til:
VIÐTALIÐ:
Það á enginn að gera neitt frekar en hann vill,
og þessvegna vilja nú allir komast þangað.
En þeir sem á annað borð vilja bjástra við eitthvað, verða settir í útgerð.
Sú útgerð verður þá með alveg sérstöku fyrirkomulagi, því ekki höfum við efni á að
tapa á aðalatvinnuvegi þjóðarinnar eins og Íslendingar.
Ég hugsa mér það þannig, að taka tvö skip á leigu í Suður-Frakklandi og hlaða annað
með víni en hitt með ungum Parísarstúlkum.
Stúkuskipið kalla ég Hvíta skipið, en hitt Svarta skipið.
Svo læt ég sigla skipunum norður fyrir Ísland í júníbyrjun og eiga þar skipti við
síldveiðimenn, - utan landhelgi auðvitað.
Þá verða keyptar vistir fyrir ágóðann, skipunum lagt til næsta vors, stúlkurnar teknar
í land og haldin veisla vetrarlangt.
Þá verður nú dansað dátt og sungið hátt á St. Kilda.
PS: Blaðamaður spyr greifann af Dunganon hvort það séu margir sem vilji flytjast til
eyjarinnar til hans og játaði greifinn því, sagði að þúsundir manna hefðu þegar
sótt um borgararétt í hinu væntanlega ríki, síst mundi sig skorta fólk.
Karl Einarsson,
eða greifinn af Dunganon og hertogi af St. Kilda var margslungin persóna, og
áleit að lífið væri yndislegt, ef menn væru ekki alltaf að skipta sér af því,
sem þeim kæmi ekkert við.
Hamingja hvers einstaklings væri fólgin í draumum hans og hugsun, en ekki í þessum
taktlausa hávaða, sem nefndur er efnisheimur.
Magnús Einarsson faðir Karls Dunganons.
Magnús, faðir Karls Dunganons var úrsmiður m.a. og rak verslun.
Var hann mjög svo uppfyndingarsamur og hafði dauðann kött í búðarglugganum
sem drifinn var með úrverki og spilaði á fíólín.
Á miðjum aldri fór Karl Einarsson Dunganon að mála myndir og virtist það
liggja vel við þessum lífskúnstner og fagurkera.
Einnig var hann skáld gott, þá sérstaklega á bundið mál.
Það fullyrti hann,
að listaverk fyrr og síðar, væru annaðhvort sköpuð af trú, kjarki, eða með galdri.
Málverkasýningu hélt hann í Reykjavík árið 1961.
Það var vinur hans sem ljáði honum aðgang að hýbýlum sínum til sýningarinnar.
Fiskidrengurinn mynd eftir Karl.
Í stað þess, að hengja myndir sínar á veggina,
þá lagði hann myndirnar á gólfið og þannig komið fyrir, að á milli þeirra voru lagðar
"fjárgötur",
þannig að fólkið sem kom til að skoða myndir hans, urðu að horfa
niður á gólfið til að njóta sýningarinnar.
Teikning eftir Karl, Gandakallur.
Apar og apamenn eftir Karl Einarsson.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.5.2011 | 21:14
VESTMANNAEYJAR VERÐA "WISKYMANNAEYJAR" Í NOKKRA DAGA.
Í Fylkir,
árið 1950 segir frá því,
að tveir Svíar hafi þá verið hér á þjóðhátíð í
Eyjum, blaðamaður og ljósmyndari.
Á meðan á dvöl þeirra stóð hérna í Vestmannaeyjum,
dvöldu þeir á hóteli HB í eigu Helga Benediktssonar, kaupmanns og útvegsbónda.
ÞEIM SAGÐIST SVO FRÁ:
Ég hafði tekið í mig kjark og boðið hýreygri fríðleiksmær í dans.
Hrífandi ómuðu tónarnir frá litlu hljómsveitinn milli hárra fjallshlíðanna og við
olnboguðum okkur ákveðin áfram milli tjaldaraðanna.
En við innganginn að danspallinum hlaut för sú sneypulegan endir.
Hranalegur vörður þreif í mig og hvessti á mig augun.
Aðgöngumiðinn að dansinum - sem kvöldið áður kostaði mig 40 krónur - var úr
gildi genginn!
Í kvöld kostaði það aðrar 40 krónur, vildi maður skemmta sér.
Heimsins dýrast dansmiði, það veit trúa mín - en stúlkan var sannarlega þess virði.
Þegar aðrir Íslendingar hitta Vestamannaeying, sýna þeir honum næstum því lotninga
kennda auðsveipni og virðingu.
Að vera Íslendingur er það besta, sem hugsast getur,
að vera Vestmannaeyingur
enn fínna.
Virðingin á ef til vill rætur sínar að rekja til þess,
að Vestmannaeyingar eru manna ríkastir á Íslandi.
Og það skilur maður, að svo hlýtur að vera, þegar þeir bæði taka og fá 80 Ísl,
krónur (gengi 3:15) fyrir nokkra snúninga tvö kvöld í röð.
Ríkastur hinna ríku er maður sá, sem dylst bak við bókstafina "HB", sem maður sér
hvarvetna í Vestmannaeyjum.
Helgi Benediktsson ´heldur ræðu á 17. júní á
Stakkó.
Þeir eru bróderaðir á rekkjuvoðirnar í hótelinu, þar sem maður sefur, þeir standa á
matarílátunum í matsölinni, þar sem maður borðar.
Maður les þá á húsveggjunum beint á móti, þegar maður vaknar og hleypir upp
fellitjaldinu, þeir standa á öllum dósum með niðursoðnum fiski, á öllum bátum,
öllum bílum, í öllum búðargluggum.... Það lítur ekki út fyrir að þarna rúmist neinn
nema þessi,
Helgi Benediktsson.
En þótt hann lifi eins og kóngur í ríki sínu, hafa allir hinir 4000 undirsátar hans í
kaupstaðnum að meðaltali bestu bankainnstæðurnar í bönkum á Íslandi.
En hversu ríkir sem Vestmannaeyingar eru nú,
geta þeir aldrei keypt sig frjálsa.
Með árlegri afborgun geta þeir byggt sín eigin hús, en þeir geta aldrei eignast lóðina -
öll eyjan er eign ríkisins.
Fiskveiðar og eggjataka eru aðalatvinnuvegirnir og Vestmannaeyingurinn er iðnari og
kemst betur áfram en landar hans.
En einu sinni á ári tekur hann sér frí og fer a.m.k. á ærlegt fyllerí.
Þá eru Vestmannaeyjar í nokkra daga frekar
"Wiskymannaeyjar".. já, siðurinn hélst allt frá 1874,
þegar minnst var 1000 ára frá upphafi Íslandsbyggðar.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.5.2011 | 18:40
TÓNSKÁLDIÐ SEM HAFÐI VIÐKOMU Í EYJUM.
Vestmannaeyjar um miðja síðustu öld.
Björn Th. Björnsson hefur í bókum sínum ritað eitt og annað á sínum langa ferli.
Hér segir frá einum ágætum manni sem hét,
Jón Pálsson frá Hlíð, Eyjafjöllum:
Og svo var hann líka,
að sagt var tónskáld, þótt engum tækist að skilja það.
Ekkert átti hann hljóðfærið og enga hafði hann vistarveruna.
Aldrei spilaði hann og aldrei var neitt eftir hann spilað.
En tónskáld samt.
Haft er fyrir satt, að mússikhneigð góðmenni í höfuðstaðnum hafi skotið saman
farareyrir handa þessu tónverkalausa tónskáldi til Vínar og fór þar fremstur,
Jón Pálsson alnafni tónskáldsins, sem þá var bankagjaldkeri, mikill öðlingsmaður.
Segir nú sagan, að þessir músíkölsku velgerðarmenn hafi kvatt Vínarfarann
niðurá bryggju, og síðan skundað ánægðir til síns heima, að hafa komið góðum
hæfileikum á göfuga braut.
Á þessum árum var það (og mjög viðsjárverður) háttur skipa á útleið,
að hafa viðkomu í Vestmannaeyjum.
Þar sem umrætt og væntanlegt tónskáld þekkti diversi kúltúrelement í staðnum
dvaldist honum þar lengur en svo að rétt áframhald yrði með skipsferðinni.
Ofan á það bætist, að tregt var um drykkjarföng á þeim vondu árum, jafnvel þótt
menn gengju með hundraðkalla á sér í vösunum.
Árni hét frægur rakari Böðvarsson á Bárustígnum, og til hans fer nú Jón
(og ekki endilega í rakaralegum erindum) og biður hann að selja sér flösku af
Bayrum ( sem var þó af náttúrunnar hendi fremur ætluð á höfuðið en í).
Hér í Bárgötu 11, Bifröst var aðsetur Árna rakara Böðvarsson.
Á efri hæðinni rak hann svo billjardstofu.
Árni rakari rétti Jóni glasið og segir fimmkall.
Jón rétti honum á móti stóra seðilinn og Árni segir:
Ja því miður get ég ekki skipt.
Þá á væntanlegur Vínarfari að hafa sagt: - Það gerir ekkert til. Ég smátek bara út á
það.
Síðan heldur reyfari þessi áfram á þá lund að Jóni var þrotinn farareyrinn, en fékk
hinsvegar gratís flutning á fastalandi aftur.
Morgun einn árla á svo að hafa verið barið að dyrum hjá áðurnefndum forystumanni
útsendingarinnar og á pallinum staðið sá sem átti samkvæmt almanakinu að vera
kominn til Dónár fögru borgar og mælt við velgjörðara sinn á náttfötunum þessi orð:
- Haldið þér, nafni minn, að eitthvert fúndament sé fyrir nýrri
kollektíón ?
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.5.2011 | 13:05
BENNI BLAÐAKÓNGUR.
Benedikt Ragnarsson eða "Benni blaðakóngur",
eins og við köllum hann við Fylkir,
er meðal duglegustu sölubarna blaðsins.
Hann er þrautseigur við söluna og hefur aflað sér talsverðar tekna með blaðasölunni,
og er meðferð þeirra til fyrirmyndar fyrir önnur börn.
Benni er 8 ára.
Svona hljóðaði umsögn um vin minn Benedikt Ragnarsson í
jólablaði Fylkis árið 1950.
Við Benni lékum okkur oft saman, enda báðir Lautarpeyjar.
Einhverju sinn sýndi Benni mér söluafraksturinn, og var það nærri full, 2 kg.
sultukrukka með smápeningum. Á þessum árum var mjög algengt að börn og
unglingar fóru um allan bæ, og seldu bæjarblöðin, sem útgefin voru hér í Eyjum.
S.s. Fylkir, Eyjablaðið, Brautin, Framsóknarblaðið og Framsókn.
Stundum gekk mikið á hjá krökkunum að vera fyrstur að fá blöðin í hendur og hefja
söluna.
Alla skólagöngu okkar,
í barna- og Gagnfræðaskóla vorum við Benni ávallt í sama bekk.
Enginn þekkti drenginn í daglegu tali manna, öðruvísi en skilgreina Benedikt,
sem Benni blaðó og hélst það þannig, ávallt.
En Benedikt féll frá langt um aldur fram, því miður.
Hér til vinstri má sjá Benna ásamt skólafélögunum,
Sigurði Tomm í miðið og svo Ásgeir Lýðss. til hægri.
Myndin er tekin af mér í frægu skólafeðalagi til Skotlands,
árið 1958.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.5.2011 | 16:11
ÞEGAR GÖLLI VALDA VAR HÁSETI HJÁ BINNA Í GRÖF.
Á árunum áður var lengi háseti hjá honum Binna í Gröf,
Árni Valdason,
eða eins og allir Eyjamenn og flestir landsmenn þekktu karl,
sem Gölla-Valda.
Einhverju sinni komu þeir á Gullborginni inn til Akureyrar með drekkhlaðið
skip af síld.
Skipshöfnin hóf nú undirbúning að losun á síldinni.
Þá skundar Árni í land.
Þegar losun síldarinnar er um það bil að ljúka,
kemur Árni til skips, augafullur.
Benóný skipsstjóri og allir strákarnir um borð, voru sárgramir út í Árna,
fyrir að hafa hlaupið frá skylduverkum sínum.
Binni tekur nú að átelja Árna, þar sem hann stendur með hendur í vösunum og
blínir á félaga sína, sem nú eru við að ljúka lönduninni.
Árni svarar átölum skipsstjórans hressilega:
"Einhver verður að vera í því andlega,
strákar"!
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Þorkell Rúnar Sigurjónsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
ibvfan
-
fosterinn
-
maggibraga
-
solir
-
georg
-
gretaro
-
sigthora
-
kjartanvido
-
eyglohardar
-
rustikus
-
svenko
-
eyjapeyji
-
kokkurinn
-
valdivest
-
disin
-
smarijokull
-
kristleifur
-
gudnihjoll
-
sjonsson
-
nautabaninn
-
prakkarinn
-
bergen
-
icekeiko
-
asthildurcesil
-
joiragnars
-
hallarut
-
annabjo
-
jensgud
-
jonaa
-
svarthamar
-
kaffi
-
stormsker
-
olinathorv
-
zunzilla
-
gbo
-
steinibriem
-
siggith
-
ea
-
svanurg
-
tannibowie
-
valdimarjohannesson
-
martasmarta
-
gullfoss
-
elnino
-
sunna2
-
thjodarskutan
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar