ÁFRAM ÍBV.

 

 

IMG_2256

 

ÍBV,

til hamingju með góðan sigur í Grindavík.

Það verður að segjast eins og er,  að ég hefi nokkra samúð með Grindavíkurliðinu,

að þurfa að tapa leiknum,  en svona er það,

" enginn er annars bróðir í leik".

 

Næsti leikur verður við Fylkir hérna heima á sunnudaginn og það þykir mér

ansi leitt,  að ég er að fara í tveggja mánaða frí til dóttur minnar,  sem býr í

Svíþjóð,  þannig að ég verð fjarri góðu gamni í boltanum lungað úr sumrinu.

Enginn Keli á Hásteinsvelli  með sín köll, áfram ÍBV.

ÍBV fánann ætlar hann frændi minn,Björn Ívar Karlsson að veifa  á hverjum

heimaleik fyrir mig og kannski kemst hann á bragðið með að hrópa einnig,

áfram ÍBV,  hver veit!

 

Á þennan hátt verð ég með ÍBV-liðinu í anda hvern einasta leik og mun biðja hátt og í

hljóði fyrir þeirra velgengni í allt sumar.

 

Sárabót er það að nú er að hefjast heimsmeistaramótið í fótboltanum og sennilega

verð ég eins duglegur og þegar síðasta móti stóð árið 2006,  þegar ég horfði á alla leiki

mótsins beint,  að undanskildum tveimur leikjum.

 

Reyndar er maður ekki svo fjarlægur því sem er að gerast eins og í íslenska

fótboltanum, því fréttir og lýsing er á mbl.is þannig að maður getur vel verið með á

nótunum.

 

En, 

ekkert kemur samt í staðinn fyrir það,  að standa við Hásteinsvöllinn og

veifa ÍBV-fánanum og hrópa,

áfram ÍBV, áfram ÍBV, áfram ÍBV. 

 

 


mbl.is Eyjamenn of sterkir fyrir Grindavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þorkell Rúnar Sigurjónsson

Höfundur

Þorkell Sigurjónsson
Þorkell Sigurjónsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...196_1252211
  • ...056_1245763
  • ...002_1245762
  • ...d_1_1245761
  • ...002_1245245

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband