19.5.2009 | 21:47
GOÐUM LÍKUR GUNNAR ER ?
Það er gott að búa í Kópavogi segir
Gunnar Birgisson.
Ætla má, að nú sé verulega farið að hitna undir kappanum og ef,
framsókn nær að reka af sér slyðru orðið og rífa sig úr tengslum
við Kópavogs Goðið,
þá munu dagar vínviðar-rósa og súluferða brátt tilheyra fortíðinni.
En kannski
og það kæmi ekki á óvart, að framsókn setji kíkirinn á
blinda augað og láti sem ekkert sé,
þannig að feðginin haldi áfram,
að mala gull fyrir sig og sína og
verður spennandi að fylgjast með,
hvað verður.
![]() |
Ræddu hugsanleg meirihlutaslit |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.5.2009 | 23:21
EKKERT NEMA BLAÐUR ?
Ég á barasta ekki eitt einasta orð.
Hún Jóhanna forsætisráðherra átti aftur á móti nóg af orðum um
akkúrat ekki neitt.
Ræða hennar í kvöld var nákvæm endurtekning
á því sem hún hefur verið að fjasa um s.l. mánuði og ber þar
auðvitað hæst ESB,
sem virðist í hennar huga eins konar töfra formúla á lausn
þeirra erfiðleika,
sem við glímum við.
Stjórnarandstaðan með fremsta í flokki þá Bjarna ben-sín og
formann framsóknar- lausa flokksins voru engu skárri.
Satt best að segja vorkenni ég þessu liði,
sem situr núna á alþingi og enginn já enginn þeirra virðast vita til hvers
þau hafa verið kosin á alþingi.
Oddvitar ríkisstjórnar flokkanna tala í kross um ESB og þetta er fólkið,
sem öllu á að bjarga í dag.
Er nema von að maður verði svartsýnn á framtíðina?
![]() |
Leiði mótun sjávarútvegsstefnu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.5.2009 | 16:59
ÖMMI SYKURPÚÐI ?
Það nýjasta er sykur skattur,
hvaða skattur verður það næst?
Ég segi fyrir sjálfan mig, að mér er svo sem sama um tál sykursins
það hefur aldrei freistað mín, hvorki sælgæti,
sykraðir gosdrykkir,
eða kleinuhringir, en að auki er ég duglegur að bursta mínar tennur.
Að vera orðinn sextíu og sex ára og með allar tennur í lagi
segir mér, að mikil sykurneysla er skaðleg fyrir tennurnar og
ef ég skil hugmyndina rétt um sykurskatt,
þá eigi sykurneysla að minnka og tannheilsa að batna og
svo sannarlega er ég sammála því.
En sjálfsagt verður sykurinn, sem keyptur er í bakstur o.fl.
einnig undir sama hatti og mun þá líklega hækka bakkelsið
og auka um leið verðbólguna?
Mér verður hugsað til mannsins, sem var að gera innkaup í
Bónusverslun samtímis mér um daginn.
Af útliti hans áliktaði ég strax, að hann væri nokkuð ölkær maður.
Það reyndist rétt því hann hrúgaði einum tíu pakkningum af sykri
í innkaupakerruna sína.
Þegar ég brosti til mannsins setti hann upp afsökunar glott og sagði,
að ekki dygði annað en bjarga sér á þessum erfiðu og verstu tímum.
Þannig að sú sjálfsbjargviðleitni
gæti orði þessum mann og fleirum
torsóttari peningalega séð,
þegar Ömmi kemur með
skattinn sinn.
Öll þessi umræða um lélega tannheilsu barn í dag sýnir mér og
sjálfsagt öllum,
að góðærið sem svo oft er tíundað undanfarin ár
hefur algjörlega farið fram hjá venjulegu fólki.
![]() |
Sykurskattur fyrir lýðheilsu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.5.2009 | 20:10
MÖGNUÐ TILFINNING.
"Úr plógfari Gefjunar" heitir prýðis góð bók eftir þann sómamann
og Vestmannaeying, Björn Th. Björnsson.
Þegar ég las einn kafla hennar sem heitir:
"Helför Skafta eða:
Smáveizla hjá Fernini."
varð ég eitthvað svo skrítinn innan í mér og
einhverskonar tregi kom yfir mig, eða tilfinning fyrir því,
að ég sjálfur væri að upplifa það sem greinin segir
frá Íslendingunum þremur,
Jónasi Hallgrímssyni, Konráð Gíslasyni og Brynjólfi
Péturssyni þar sem þeir koma gangandi saman frá því að vera við
útför vinar þeirra Skafta, en hann fyrirfór sér.
"Nú, þar sem þeir þrír koma gangandi saman berhöfðaðir ofan
milli nýgrafanna þennan kyrra apríldag,
hefði enginn spádómsandi getað það fyrir séð,
að þessi fagri garður yrði síðar
hinsta hvílurúm þeirra allra þriggja."
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.5.2009 | 15:41
SIÐGÆÐI FYRIR ALÞINGISMENN !
Konfusius var merkur Kínverskur karl.
Hann segir einhversstaðar.
Siðgæðið felst einfaldlega í því, að vera ævinlega og alls staðar
fær um um að auðsýna fimm ákveðin atriði.
Aðspurður,
hver þau væru, svaraði hann:
Sjálfsvirðingu,
göfugmennsku,
einlægni,
festu og góðvilja.
Sýndu sjálfsvirðingu, og aðrir menn munu virða þig.
Vertu göfuglyndur,
og þú vinnur hylli allra.
Vertu einlægur,
og menn munu treysta þér.
Vertu fastlyndur og þú munt ávinna mikið.
Vertu góðviljaður og þú munt fá aðra til
fylgis við þig.
Þarna er sem sagt komin ágætis
uppskrift fyrir ný kjörna alþingismenn á Íslandi í dag !
![]() |
Alþingi sett á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.5.2009 | 14:53
ÞAÐ ER GÓÐUR PRESTUR, SEM FER EFTIR EIGIN KENNINGU ?
Ja hérna.
Kannski er hér ágætis leið Íslenskra presta til að
hressa upp á kirkjusókn.
Þeir gætu í ræðum sínum greint frá sýn sinni á samlíf fólks,
ekki aðeins utan svefnherbergis heldur og innan þess.
Þetta minnir mig á það sem ég las fyrir margt löngu síðan
af siðum kvenna, sem bjuggu í Alaska.
Sögumaður segir frá því að konurnar sem auðvitað voru
klæddar skinnfatnaði hafi hverja stund verið að tína af sér lýsnar
og stigið svo á þær.
Og áfram áfram segir hann, að konurnar hafi haft
annan undalegan sið.
Þær áttu það til að stinga upp í sig fló,
bíta hana í tvennt,
gleypa annan hlutann en kasta hinum í mig.
Ég spurði karlmenn þarna hvað þessi vitleysa ætti eiginlega að þýða.
Þeir brostu og sögðu að konurnar væru
áræðanlega að tjá mér
ást sína.
Skrítin ástarjátning það !
![]() |
Prestur gefur út kynlífshandbók |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2009 | 17:04
ROKLEIKUR Í EYJUM Í KVÖLD ?
Þrátt fyrir hvassa austan átt er flug hingað til Eyja,
þannig að leikurinn fer örugglega fram kl. 19.15.
Fróðlegt verður að sjá hvernig liðið mitt ÍBV kemur undan vetri
hérna á heimavelli sínum.
Það gera allir sér grein fyrir að hver og einn leikur í sumar verður
erfiður.
Rokleikur eins og sá, sem leikinn verður í kvöld hérna á
Hásteinsvelli mun kannski ekki gefa raunsanna mynd á getu liðanna og
þannig gæti sterkur vindur sett strik í reikninginn.
En hvernig sem allt fer nú er það að sjálfsögðu einlæg von mín að
ÍBV landi sínum fyrsta sigri í kvöld.
ÁFRAM ÍBV.
![]() |
Önnur umferð hefst á Hásteinsvelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.5.2009 | 14:19
KURTEISI PEYINN FRÁ EYJUM ?
Þingmenn læra góða siði hjá Eyjamanninum, Helga Bernódussyni
og hefi ég ávallt sagt það að hann frændi
hefði átt að verða kennari.
Kurteisi er allra meina bót og sagt er;
"með hattinn í annarri hendinni séu manni allar leiðir færar. "
Einnig fyrir þá sem vilja vera ennþá kurteisari er það gullvægt,
að hlusta með athygli á það,
sem maður veit alveg út í hörgul,
þegar einhver,
sem veit ekkert um það,
segir honum frá því !
![]() |
Þingmenn læra góða siði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.5.2009 | 16:22
PÁFI Á ÞJÓÐHÁTÍÐ Í EYJUM ?
Auðvitað var páfi aldrei nasisti þrátt fyrir að hafa verið skráður
í flokkinn,
þegar hann var að læra til prests.
Þetta minnir á sögu, sem ég heyrði fyrir nokkrum árum síðan
af ungri dömu, en hún kom hérna á þjóðhátíð í Eyjum,
sem svo margir gera.
Hún var vel puntuð við komuna hingað og hélt áfram þeirri
stemmningu alla þjóðhátíðina og allt þar til hún fór
með Herjólfi upp á fastalandið.
Þegar hún svo var spurð hvort hún hafi farið á þjóðhátíð í Eyjum
svaraði hún því til,
að þangað hafi hún aldrei komið!
![]() |
Páfi aldrei í Hitlers-æskunni" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.5.2009 | 13:25
EURO-DRAUMURINN.
Það er þungu fargi af mér létt,
þegar sérfræðingarnir segja það blákalt í fjölmiðlum,
að Ísland komist áfram í aðalkeppnina.
Þannig er, að síðustu nætur hefi ég barasta ekki getað sofið
vel vegna spennunnar sem fylgir þessu
Euro tilstandi landans.
Ef ég væri í dag "virkur" þá væri ég sjálfsagt búinn að byrgja mig
vel fyrir kvöldið, en í staðinn fyrir stöffið læt ég mér nægja
popp og blávatn.
En kvöldið verður frábært að ég vona og
mestu skiptir,
að lagið leki inn í
aðalkeppnina.
![]() |
Því spáð að Ísland komist áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Þorkell Rúnar Sigurjónsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
ibvfan
-
fosterinn
-
maggibraga
-
solir
-
georg
-
gretaro
-
sigthora
-
kjartanvido
-
eyglohardar
-
rustikus
-
svenko
-
eyjapeyji
-
kokkurinn
-
valdivest
-
disin
-
smarijokull
-
kristleifur
-
gudnihjoll
-
sjonsson
-
nautabaninn
-
prakkarinn
-
bergen
-
icekeiko
-
asthildurcesil
-
joiragnars
-
hallarut
-
annabjo
-
jensgud
-
jonaa
-
svarthamar
-
kaffi
-
stormsker
-
olinathorv
-
zunzilla
-
gbo
-
steinibriem
-
siggith
-
ea
-
svanurg
-
tannibowie
-
valdimarjohannesson
-
martasmarta
-
gullfoss
-
elnino
-
sunna2
-
thjodarskutan
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.7.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar