Færsluflokkur: Dægurmál
24.5.2009 | 14:17
ER KRISTUR Í SJÁLFSTÆÐISFLOKKNUM ?
Ekki fór það fram hjá mér, þegar ég sá og heyrði í
ágætum vini mínum honum Gunnari í Krossinum þruma yfir
félögum sínum og ávíta vinstra pakkið í þjóðfélaginu fyrir að vera svona
vondir við
goðið þeirra, Gunnar Birgisson bæjarstjóra.
Ekki veit ég nákvæmlega efni ræðunnar Krossberans,
en hefði hún verið í anda meistara Þórbergs Þórðarsonar
hefði hann mátt vera stoltur af, þegar hann segir:
Það er miskunnarlaus barátta allra gegn öllum,
sóun tíma og orku í kúgun,
illdeilur hégóma og vitleysu, þar sem
Mammon
er dýrkaður í hjartanu,
en KRISTUR og kirkja og allar aðrar andlegar stofnanir eru höfð
fyrir tjóðurhæl til þess að halda þeim minni máttar
hinum undirokuðu í viðjum áþjánar og hleypidóma.
Ekkert vantaði upp á þessa samkomu þarna þar sem Krossberinn
útdeildi sínu "guðsorði" nema ef vera skyldi kórdrenginn hans,
hann Geira súlukóng.
En í lokin fylgir hérna gott innlegg fyrir Krossberann og aðra
sálufélaga hans innan Sjálfstæðisflokksins á
öllu landinu;
Hefir þú orðið þess var,
að kapítalistana kringum þig
klígi við altarissakramentinu fyrir þær sakir,
að höfundur þess hafði einurð á að segja
við auðvald samtíðar sinnar:
Auðveldara er úlfaldanum
að ganga gegnum
nálaraugað,
en ríkum manni
í guðsríki.
Að lokum þetta:
Gangið á Guðs vegum í dag
og alla aðra daga.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.5.2009 | 17:49
EYJAMENN "FÍLA" FÓTBOLTA OG FÝLSEGG ?.
Örfáir aðdáendur Man Utd fagna hér sigri liðsins í ensku deildinni 2009.
Mig undra ekki að þeir skuli efna til sigur hátíðar þar sem lið þeirra
Man Utd hafði betur oft á tíðum með einu marki og áttu langt í frá
sigurinn skilið,
oftar en ekki voru þeir lélegra liðið.
Ég segi það nú bara, að það kemur sér vel fyrir aðdáendur annara
liða eins og Liverpool,
að verið er að stækka útivistar svæði sundlaugarinnar,
því á næsta ári verða það hinir fjölmörgu aðdáendur Liverpool,
sem fagna munu sigri síns liðs í enska boltanum.
Það er ástæða til, að fagna fyrir hönd þeirra
Man Utd manna, að þeir skyldu fyrir utan "búsið",
vera með fýlsegg í veislu sinni.
Það er staðreynd að þeir sem éta fýlsegg munu eflast af
þori og þreki og ekki veitir þeim af blessuðum
fyrir næsta tímabil.
Ég sem ÍBV aðdáandi er einn af þeim sem hefi tröllatrú á
fýlseggjum og til fróðleiks er það að segja,
að ekki er sama hvaðan eggin koma.
Fékk egg sem tekin voru hérna á heimalandinu, Heimakletti um daginn
og voru þau mun bragðdaufari en egg,
sem ég borðaði í morgunn og voru úr Hellisey.
Aðeins að íslenska fótboltanum.
Mínu liði ÍBV hefur gengi afleitlega í byrjun móts, en þrátt fyrir
það sé ekki neina ástæðu til að vera með vol og víl þess vegna.
Ef við hérna í Eyjum styðjum dyggilega við bakið á okkar mönnum,
þá er ég sannfærður um, að betur mun ganga í næstu leikjum.
Kannski er ráðið, að innbyrða eins og þrjú egg
daginn fyrir leik?
Það er raunalegt uppá að horfa,
þegar leikmenn og forráðamenn liða, sem nú keppa ekki í efstu deild
og mega muna sinn fífil fegurri, þegar
þeir koma fram á síðum blaðanna og tala um
"harmafréttir" og liðið hafi þurft að líða mestu niðurlægingu o. fl. í
þeim dúr.
Hélt satt að segja að Skagamenn væru fótboltamenn,
en ekki einhverjir
vælukjóar!
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.5.2009 | 14:15
FYRSTA SKEMMTIFERÐASKIPIÐ KOMIÐ TIL EYJA.
Fyrsta skemmtiferðarskipið sem til Eyja kemur í ár.
Tók þessa myndir núna í hádeginu og sýnir það skip skráð, Narvik í
Noregi.
Heiti þess eins og sjá má er FRAM og lét ég mér detta í hug,
að fótboltalið þeirra Frammara væri mætt,
en ekki passar það þar sem við
eigum heimaleikinn gegn þeim í haust.
Þetta mun vera fyrsta skemmtiferðarskipið af tuttugu,
sem koma hér við í Eyjum í sumar.
Það litar bæjar lífið alltaf,
þegar farþegarnir dreifast um bæinn.
Lítill fugl hvíslaði því að mér,
að þeir fjárfesti hér lítið sem ekkert, þá helst að þeir kaupi
minjagripi, sem tengjast
Heimeyjargosinu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.5.2009 | 21:47
GOÐUM LÍKUR GUNNAR ER ?
Það er gott að búa í Kópavogi segir
Gunnar Birgisson.
Ætla má, að nú sé verulega farið að hitna undir kappanum og ef,
framsókn nær að reka af sér slyðru orðið og rífa sig úr tengslum
við Kópavogs Goðið,
þá munu dagar vínviðar-rósa og súluferða brátt tilheyra fortíðinni.
En kannski
og það kæmi ekki á óvart, að framsókn setji kíkirinn á
blinda augað og láti sem ekkert sé,
þannig að feðginin haldi áfram,
að mala gull fyrir sig og sína og
verður spennandi að fylgjast með,
hvað verður.
Ræddu hugsanleg meirihlutaslit | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.5.2009 | 23:21
EKKERT NEMA BLAÐUR ?
Ég á barasta ekki eitt einasta orð.
Hún Jóhanna forsætisráðherra átti aftur á móti nóg af orðum um
akkúrat ekki neitt.
Ræða hennar í kvöld var nákvæm endurtekning
á því sem hún hefur verið að fjasa um s.l. mánuði og ber þar
auðvitað hæst ESB,
sem virðist í hennar huga eins konar töfra formúla á lausn
þeirra erfiðleika,
sem við glímum við.
Stjórnarandstaðan með fremsta í flokki þá Bjarna ben-sín og
formann framsóknar- lausa flokksins voru engu skárri.
Satt best að segja vorkenni ég þessu liði,
sem situr núna á alþingi og enginn já enginn þeirra virðast vita til hvers
þau hafa verið kosin á alþingi.
Oddvitar ríkisstjórnar flokkanna tala í kross um ESB og þetta er fólkið,
sem öllu á að bjarga í dag.
Er nema von að maður verði svartsýnn á framtíðina?
Leiði mótun sjávarútvegsstefnu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.5.2009 | 16:59
ÖMMI SYKURPÚÐI ?
Það nýjasta er sykur skattur,
hvaða skattur verður það næst?
Ég segi fyrir sjálfan mig, að mér er svo sem sama um tál sykursins
það hefur aldrei freistað mín, hvorki sælgæti,
sykraðir gosdrykkir,
eða kleinuhringir, en að auki er ég duglegur að bursta mínar tennur.
Að vera orðinn sextíu og sex ára og með allar tennur í lagi
segir mér, að mikil sykurneysla er skaðleg fyrir tennurnar og
ef ég skil hugmyndina rétt um sykurskatt,
þá eigi sykurneysla að minnka og tannheilsa að batna og
svo sannarlega er ég sammála því.
En sjálfsagt verður sykurinn, sem keyptur er í bakstur o.fl.
einnig undir sama hatti og mun þá líklega hækka bakkelsið
og auka um leið verðbólguna?
Mér verður hugsað til mannsins, sem var að gera innkaup í
Bónusverslun samtímis mér um daginn.
Af útliti hans áliktaði ég strax, að hann væri nokkuð ölkær maður.
Það reyndist rétt því hann hrúgaði einum tíu pakkningum af sykri
í innkaupakerruna sína.
Þegar ég brosti til mannsins setti hann upp afsökunar glott og sagði,
að ekki dygði annað en bjarga sér á þessum erfiðu og verstu tímum.
Þannig að sú sjálfsbjargviðleitni
gæti orði þessum mann og fleirum
torsóttari peningalega séð,
þegar Ömmi kemur með
skattinn sinn.
Öll þessi umræða um lélega tannheilsu barn í dag sýnir mér og
sjálfsagt öllum,
að góðærið sem svo oft er tíundað undanfarin ár
hefur algjörlega farið fram hjá venjulegu fólki.
Sykurskattur fyrir lýðheilsu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.5.2009 | 20:10
MÖGNUÐ TILFINNING.
"Úr plógfari Gefjunar" heitir prýðis góð bók eftir þann sómamann
og Vestmannaeying, Björn Th. Björnsson.
Þegar ég las einn kafla hennar sem heitir:
"Helför Skafta eða:
Smáveizla hjá Fernini."
varð ég eitthvað svo skrítinn innan í mér og
einhverskonar tregi kom yfir mig, eða tilfinning fyrir því,
að ég sjálfur væri að upplifa það sem greinin segir
frá Íslendingunum þremur,
Jónasi Hallgrímssyni, Konráð Gíslasyni og Brynjólfi
Péturssyni þar sem þeir koma gangandi saman frá því að vera við
útför vinar þeirra Skafta, en hann fyrirfór sér.
"Nú, þar sem þeir þrír koma gangandi saman berhöfðaðir ofan
milli nýgrafanna þennan kyrra apríldag,
hefði enginn spádómsandi getað það fyrir séð,
að þessi fagri garður yrði síðar
hinsta hvílurúm þeirra allra þriggja."
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.5.2009 | 15:41
SIÐGÆÐI FYRIR ALÞINGISMENN !
Konfusius var merkur Kínverskur karl.
Hann segir einhversstaðar.
Siðgæðið felst einfaldlega í því, að vera ævinlega og alls staðar
fær um um að auðsýna fimm ákveðin atriði.
Aðspurður,
hver þau væru, svaraði hann:
Sjálfsvirðingu,
göfugmennsku,
einlægni,
festu og góðvilja.
Sýndu sjálfsvirðingu, og aðrir menn munu virða þig.
Vertu göfuglyndur,
og þú vinnur hylli allra.
Vertu einlægur,
og menn munu treysta þér.
Vertu fastlyndur og þú munt ávinna mikið.
Vertu góðviljaður og þú munt fá aðra til
fylgis við þig.
Þarna er sem sagt komin ágætis
uppskrift fyrir ný kjörna alþingismenn á Íslandi í dag !
Alþingi sett á morgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.5.2009 | 14:53
ÞAÐ ER GÓÐUR PRESTUR, SEM FER EFTIR EIGIN KENNINGU ?
Ja hérna.
Kannski er hér ágætis leið Íslenskra presta til að
hressa upp á kirkjusókn.
Þeir gætu í ræðum sínum greint frá sýn sinni á samlíf fólks,
ekki aðeins utan svefnherbergis heldur og innan þess.
Þetta minnir mig á það sem ég las fyrir margt löngu síðan
af siðum kvenna, sem bjuggu í Alaska.
Sögumaður segir frá því að konurnar sem auðvitað voru
klæddar skinnfatnaði hafi hverja stund verið að tína af sér lýsnar
og stigið svo á þær.
Og áfram áfram segir hann, að konurnar hafi haft
annan undalegan sið.
Þær áttu það til að stinga upp í sig fló,
bíta hana í tvennt,
gleypa annan hlutann en kasta hinum í mig.
Ég spurði karlmenn þarna hvað þessi vitleysa ætti eiginlega að þýða.
Þeir brostu og sögðu að konurnar væru
áræðanlega að tjá mér
ást sína.
Skrítin ástarjátning það !
Prestur gefur út kynlífshandbók | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2009 | 14:19
KURTEISI PEYINN FRÁ EYJUM ?
Þingmenn læra góða siði hjá Eyjamanninum, Helga Bernódussyni
og hefi ég ávallt sagt það að hann frændi
hefði átt að verða kennari.
Kurteisi er allra meina bót og sagt er;
"með hattinn í annarri hendinni séu manni allar leiðir færar. "
Einnig fyrir þá sem vilja vera ennþá kurteisari er það gullvægt,
að hlusta með athygli á það,
sem maður veit alveg út í hörgul,
þegar einhver,
sem veit ekkert um það,
segir honum frá því !
Þingmenn læra góða siði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Þorkell Rúnar Sigurjónsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- ibvfan
- fosterinn
- maggibraga
- solir
- georg
- gretaro
- sigthora
- kjartanvido
- eyglohardar
- rustikus
- svenko
- eyjapeyji
- kokkurinn
- valdivest
- disin
- smarijokull
- kristleifur
- gudnihjoll
- sjonsson
- nautabaninn
- prakkarinn
- bergen
- icekeiko
- asthildurcesil
- joiragnars
- hallarut
- annabjo
- jensgud
- jonaa
- svarthamar
- kaffi
- stormsker
- olinathorv
- zunzilla
- gbo
- steinibriem
- siggith
- ea
- svanurg
- tannibowie
- valdimarjohannesson
- martasmarta
- gullfoss
- elnino
- sunna2
- thjodarskutan
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar