Færsluflokkur: Dægurmál

PÁFI Á ÞJÓÐHÁTÍÐ Í EYJUM ?

 

hitler_240302

 

Auðvitað var páfi aldrei nasisti þrátt fyrir að hafa verið skráður

í flokkinn,

þegar hann var að læra til prests.

Þetta minnir á sögu, sem ég heyrði fyrir nokkrum árum síðan

af ungri dömu, en hún kom hérna á þjóðhátíð í Eyjum,

sem svo margir gera.

Hún var vel puntuð við komuna hingað og hélt áfram þeirri

stemmningu alla þjóðhátíðina og allt þar til hún fór

með Herjólfi upp á fastalandið.

Þegar hún svo var spurð hvort hún hafi farið á þjóðhátíð í Eyjum

svaraði hún því til,

að þangað hafi hún aldrei komið!

 


mbl.is „Páfi aldrei í Hitlers-æskunni"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EURO-DRAUMURINN.

 

498209

 

Það er þungu fargi af mér létt,

þegar sérfræðingarnir segja það blákalt í fjölmiðlum,

að Ísland komist áfram í aðalkeppnina.

Þannig er,  að síðustu nætur hefi ég barasta ekki getað sofið

vel vegna spennunnar sem fylgir þessu

Euro tilstandi landans.

Ef ég væri í dag "virkur" þá væri ég sjálfsagt búinn að byrgja mig

vel fyrir kvöldið, en í staðinn fyrir stöffið læt ég mér nægja

popp og blávatn.

En kvöldið verður frábært að ég vona og

mestu skiptir,

að lagið leki inn í

aðalkeppnina.


mbl.is Því spáð að Ísland komist áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HANASLAGUR Í EYJUM ?

 

149df5af8c567ba60b7c2902e10f3fe7_hani

 

Mikil og hatrömm deila er nú risin hérna í

Eyjum vegna hanans, sem galar alltaf samviskusamlega

á morgnanna klukkan sjö til að vekja sínar

"spúsur".

Enginn svefnfriður segja nágrannar hanans,

en eigandinn skellir skolleyrum við slíkum fullyrðingum.

Ekki er ennþá vitað hvort hænurnar fái að

vakna við sitt hanagal í framtíðinni.

 

Sjónarsviptir væri, ef gera þyrfti hanann höfðinu styttri og

minnist ég ávalt þess,

þegar ég var í sveitinni forðum daga og bræður tveir,

sem hjuggu hanann sinn og ekki tókst þeim betur en svo,

að axarblaðið lenti á deri húfuna hjá þeim, sem hélt hananum og

 munaði ekki mörgum sentímetrum þar,

að haninn slyppi og manns höfuð

fyki.

 

 

 

 

 


TANNHVASS PRÓFESSOR ?

 

Falskar_tennur_krati_jpg_550x400_q95

 

Satt og rétt hjá honum Siffa.

Fyrst og síðast þarf fræðslu og áróður fyrir tannhirðu og þá sérstaklega

í skólum landsins.

Góð tannheilsa er heilbrigðismál og á ekki að vera fyrir fáa útvalda,

eða þá sem hafa efni á að láta gera við tennur sínar,

heldur ætti það að vera sjálfsögð þjónusta,

sem allir fái notið.

Nýja ríkisstjórnin, sem ætlar sér að ríkja í anda

"norrænnar velferðarstjórna"

mætti kannski bæta við sinn langa

"lista" eins og nokkrum  þorskígildistonnum

fyrir tannviðgerðir landans.

 

 

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Sofna ekki án verkjalyfja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÆTLI RONALDO KUNNI AÐ SKAMMAST SÍN ?

 

483887

 

Satt segir Bryan Robson,  þegar hann átelur viðbrögð

Ronaldo í gær.

Það var í einu orði sagt ömurlegt á að horfa og honum til mikillar

skammar fýlusvipurinn og allt látbragð hans,

þegar hann var tekinn af velli.

Það komu nákvæmlega sömu hugsanir upp í huga mér og hjá

Bryan Robson,

að framkoma Ronaldo í gær væri slæm skilaboð til

allra aðdáenda knattspyrnunnar og ekki hvað síst til þeirra,

sem yngstir eru.

Ef leikmaðurinn kann að skammast sín á hann að biðja

alla afsökunar á framkomu sinni.

 


mbl.is Röng viðbrögð hjá Ronaldo
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞEMA NÝRRAR RÍKISSTJÓRNAR ?

 

Plato-raphael

 

Í tilefni dagsins er kannski við hæfi,

að birta hér speki Platos þrátt fyrir,

að hann fæddist ekki í gær.

Fullkomin speki felst í þessu fernu: 


Visku,

sem er sú meginstefna að gera rétt í öllum greinum.

Réttlæti,

sem er sú meginstefna að framkvæma hlutina eins á

opinberum vettvangi og í einkalífinu.

Hreysti,

sem er sú meginstefna að flýja ekki hættuna,

heldur bjóða henni byrginn.

Og hófsemi,

sem er sú meginstefna að bæla niður

girndirnar og lifa hóglátlega.


mbl.is Ríkisráðsfundir boðaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÚ ÞARF AÐ MOKA FLÓRINN.

 

497899

 

Spurning dagsins er: 


Hefur þetta fólk nógu sterk bein

til þess,

að moka flórinn,

sem óhjákvæmilega þarf að gera á næstu mánuðum?

Það er einlæg von mín,

að það geti gerst og

Sjálfstæðisflokknum verði í lengstu lög,

haldið frá landsstjórninni.

Það er mikið og krefjandi starf fram undan hjá nýrri ríkisstjórn,

en ég og fleiri,

sem ekki hafa digra sjóði uppá að hlaupa bindum miklar vonir um,

að leiðin upp til betri efnahags fyrir alla,

verði ekki látin bitna á þeim,

sem minnst hafa í þjóðfélaginu í dag.

 

 

 


mbl.is Flokksráð VG þingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HÉR OG ÞAR OG ALLSSTAÐAR.

 

Fróðlegt verður að sjá hvað innihald nýja

stjórnareggsins verður, sem þau skötuhjú Jóhanna og Steingrímur

eru að burðast við að verpa.

Vonandi að verður það ekki "fúlegg"?

 

 

 

"Fyrningaleiðin víst farin" segja þau bæði í kór og þá veit maður það,

að útgerðin í landinu mun

hágráta í kór.

 

 

 

"Ráðgjöf verður stórefld fyrir alla",  konur sem kalla segir

forsætisráðherra.

 

 

 

Sjálfstæðisflokkurinn leggur sitt í púkkið og hefur kosið

ljósberan Illuga Gunnarsson formann ört minnkandi

þingflokks Ósjálfstæðismanna.

 

 

 

"Harma mannfall í Afganistan", segja þeir í USA.

Við Íslendingar, sem erum ein af "bandamönnum" þjóðar, sem

dags daglega undanfarna áratugi greinir frá "afrekum" sínum

á blóðvellinum hér og þar í heiminum,

eigum hiklaust að segja skilið við slíka  

 

MORÐINGJA.

 

 

 

 

"Komiði sæl" sagði íþrótta fréttamaðurinn fyrr á árum

áður en  hann byrjaði að segja fréttir af sportinu.

 

"Eiður á varamannabekknum hvað annað, þegar peningarnir ráða ferð.

 

Pepsi-deildin eins og hún nefnist efsta deildin í karlasparkinu í ár.

Þar voru forráðamenn liðanna að spá í spilin fyrir sumarið.

Þar sem flestir þeirra eru ekki mjög spámannlega vaxnir, þá þykir

mér ástæða til þess, að hafa uppi miklar efasemdir

af spámennsku þeirra.

 

 

Liðið mitt, ÍBV verður ávallt best og mest í mínum huga og það

nægir mér.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Ekkert búið nema allt sé búið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVAÐ SÉR KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR ?

 

Ég er með Moggann hérna fyrir framan mig.

Í honum er lítil grein eftir Kolbrúni Bergþórsdóttir og heitir,

"Hvað sér Samfylkingin?"

Þar segir m.a. þetta:

Sér hún (Samfó) að hún er í viðræðum við flokk sem er mesti

afturhaldsflokkur

sem nú situr á þingi?

Fæstir virðast hafa mikla trú á því að samstarf Samfylkingarinnar og

Vinstri grænna verði lífseigt.

Ekkert bendir til að Vg séu stjórntækari nú en þeir voru í

upphafi þegar þeir mynduðu sinn litla þjóðlega afturhaldsflokk.

 

 

Satt að segja vorkenni ég henni Kollu með sitt svartnættisraus og

ekki kemst ég hjá því að ætla að henni líði virkilega illa í sínum

viðhorfum.

Hún er með sleggjudóma um Vg að þeir séu afturhaldsflokkur,

hvað hefur hún fyrir sér í því?

Nákvæmlega ekkert enda kemur hún ekki með neitt bitastætt um það.

Óskhyggja hennar að stjórn sú sem nú er verið að mynda verði ekki

langlíf lýsir bara þeirri vanlíðan sem þessi ágæta kona er haldin.

Að Vg séu ekki stjórntækari nú en þegar þeir mynduðu sinn flokk fyrir

tíu árum er mér ómögulegt að skilja því þeir sem flokkur hafa aldrei

verið við stjórnvölin ef undan eru skildir s .l. þrír mánuðir.

 

 

Þannig að skrifin hennar Kollu dæma sig sjálf og virðist haldin

þeirri óskhyggju,

að hér verði bara eymd og volæði,

þegar vinstri stjórnin fer að láta að sér kveða.

Kannski skýrast skrifin hennar Kollu best, þegar hún fer að

hrósa Framsóknarflokknum í hástert.

Það vita allir sem eitthvað vita, að Framsókn og Sjálfstæðisflokkur

hafa lengst af stjórnað þessu landi og væri henni Kollu

nær að upplýsa okkur landsmenn hverskyns fyrirbæri þeir flokkar

eru.

 

Svona til að sýna að henni Kollu er ekki alls varnað,

þá kemst hún að þeirri niðurstöðu "að Vg hugsi ávallt upphátt

og maður veit því alltaf hvað þeir eru að hugsa" segir hún.

Þarna hittir hamarinn hennar Kollu  nákvæmlega höfuðið á naglanum.

Kannski hefði þjóðin ekki sokkið svona djúpt, sem raunin er í dag,

ef Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin hefðu verið heiðarleg

og hugsað upphátt áður en þjóðarskútan sigldi

í strand.

 

 

 

 

 


mbl.is Stjórnarsáttmáli í smíðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÚ ER AÐ HRÖKKVA EÐA STÖKKVA.

 

 

43b67e003cb10bb60ddd7962d803a676-large

 

Ömmi er greinilega að linast , sem andstæðingur ESB og er það

hið besta mál.

Vinstri grænir mega ekki skáka sér út í horn í íslenskri pólitík,

með þvergirðingslegri afstöðu  til aðildar að ESB.

Það er  mikið í húfi fyrir alþýðu þessa lands, að

vinstriflokkarnir tveir

sitji næstu ríkisstjórn,

vegna þeirra einföldu staðreyndar,

að þeir sem minnst mega sín í þjóðfélaginu hafa kosið þessa flokka

og treysta þeim betur en íhaldinu til að verja sinn hag.

Það er engin spurning í mínum huga,

ef VG verða til að slíta samstarfi núverandi stjórnar,

þá er ég ekki lengur stuðningsmaður

Vinstri grænna.

  


mbl.is Þjóðin verður að ráða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Þorkell Rúnar Sigurjónsson

Höfundur

Þorkell Sigurjónsson
Þorkell Sigurjónsson
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...196_1252211
  • ...056_1245763
  • ...002_1245762
  • ...d_1_1245761
  • ...002_1245245

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.9.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 251093

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband