16.6.2010 | 16:41
RÁNFUGLINN LÄTUR EKKI AD SÉR HÄDA.
Säl verid thid öll sömul.
Já,
eins og allir vita eru íslendingar ad fást vid miklar efnahagsthrengingar, en hér í
Svíthjód sigla svíar lignan sjó í theim efnum.
En,
thar sem hérna er hägri stjórn undir forsäti, Fredrik Reinfeldt, eda eins og ég hefi
skýrt hann, Fridrik Ránfugl, thá hefur verid skorid all harkalega nidur og threngt ad
theim sem eiga undir högg ad säkja.
Thad felst í thví ad allir eru settir undir sama hatt, thannig ad mörkin eru engin milli
theirra sem geta eitthvad unnid, og svo their sem enganvegin geta unnid.
Thannig var thad fyrir nokkru sídan, sem kona ein hér í nästu sýslu thar sem ég
dvel hérna í Svíthjód var mjög lasin og fékk läknisvottord thar um, en var gert skilt
eigi ad sídur ad fá sér hálft starf, sem hún enganvegin gat valdid vegna sinna
veikinda.
Hún sendi ítrekad bréf til trygginganna hérna í Svíthjód,
en vegna hertra reglna frá hendi sjórnar hägri "Ránfuglsins", fékk hún enga
leidréttingu sinna mála.
Afleidingin vard ekki umflúin, thví konan gafst upp vegna veikinda sinna og fékk
enga úrlausn sinna mála.
Hún skrifadi bréf til yfirvalda og skírði sitt mál og bad adstandendur sína afsökunar á,
ad hún säi enga utgönguleid.
Hún lagdist fyrir og tók inn stóran skammt af svefnlyfjum, sem leiddu hana til dauda.
Og thví midur er thetta ekki einsdämi hér í Svíaríki á thessu kjörtímabil
hägri stjórnarinnar hans Reinfelds, og thví eru SVÍAR thegar farnir ad hugsa
"Ránfuglinum"
thegjandi thörfina í haust, thegar kosningar fara hér fram.
Lifid heil.
![]() |
ASÍ segir sig frá stöðugleikasáttmálanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.6.2010 | 13:53
ENGINN AKI UNDIR ÁHRIFUM ÁFENGIS.
Èg sem thetta rita hefi gert mig sekan um ölvunarakstur, en var heppinn
ad ég slapp vid ad verda fyrir eda valda slysi á ödrum.
Samt gerdist thad stundum ádur fyrr, ad ég ók med börnin mín ung og var thá alveg á
skallanum, eins og sagt er.
Ábyrgdarleysid hjá mér var algjört, og bara Gud og lukkan sem komu í veg fyrir
ad ekkert slämt gerdist.
Thessvegna hvet ég alla,
ad hugsa sig tvisvar um, ádur en their reyna akstur, eftir ad hafa drukkid áfengi.
Í dag fä ég mikinn móral thegar ég hugsa til thess, hversu allt of oft ég ók undir
áhrifum áfengis og afleidingarnar geta ordid hrikalegar.
![]() |
Ók drukkin og endaði í hjólastól |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.6.2010 | 17:16
YNDISLEGA EYJAN MÍN.
Nù er èg kominn til Svìþjòðar og dvel hèrna ì gòðu yfiræti hjà dòttur
minni,barnabôrnum og tengdasyni.
Fyrsti dagurinn hèrna ì Svìarìki hefur verið alveg fràbær, enda dekrad vid gamla
manninn út í eitt.
Thid verdi ad fyrirgefa thad, ad ég skuli nota sånsku leturgerdina, thví ég er svo
lengi ad finna réttu stafina med íslensku stafagerdinni.
Ekki tharf madur nema rúmlega dagsdvöl erlendis, thegar thjóderniskenndin
í manni blossar upp, og thá sérstaklega ad vera Vestmannaeyingur.
Hér er gott vedur í dag, sól en ekki mjög hlýtt ennthá.
Thrátt fyrir sólina úti sleppir madur thví ekki ad horfa á HM í fótbolta, sem er audvitad
ómissandi fyrir fótboltasjúkan mann, eins og ég er.
Nú er klukkan hér ad stadartíma sjö, thannig ad nú verd ég ad håtta í bili.
Dóttirin er med lax í kvöldmatinn og manni verdur hugsad til nåsta leiks ÍBV,
sem verdur á KR vellinum, thá er eins gott ad sýna styrk laxins og yfirstíga
allar hindranir ad marki andstådinganna í Kapplaskjólinu á sunnudaginn.
Lifid heil og áfram ÍBV.
Ps. Gott ad sjá, ad ÍBV fáninn hefur verid í gódum höndum í leik, ÍBV-Fylkir.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.6.2010 | 18:13
TOPPLIÐIÐ ÍBV.
Frá vinstri: 'Olafur Helgi og Sigurjón synir pabba gamla med ÍBV-fánann.
Til hamingju ÍBV með þennan vinnusigur á Fylki, sem mér skilst að fari
víst ekkert í sögubækurnar eins og spekingarnir segja stundum.
Aðalatriðið eru þrjú stigin,
því menn eru fljótir að gleyma nema því sem máli skiptir,
stigin þrjú.
Vonandi hefur Björn Ívar frændi minn verið mættur með ÍBV fánann,
sem ég fól honum að veifa eins og vitlaus maður.
Hrópin áfram ÍBV koma ábyggilega, þegar við förum að verma toppinn eins og við
gerum núna og vonandi gerum áfram.
Ég verð að segja það eins og er, að mér leið alveg hörmulega hérna í
höfuðborginni og fylgjast með leiknum í gegnum mbl.is og geta á engan hátt tekið
þátt í leiknum.
Ég sendi öllum í Eyjum mínar bestu óskir og,
áfram ÍBV, áfram ÍBV, áfram ÍBV.
![]() |
Eyjamenn komnir á toppinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt 15.6.2010 kl. 15:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.6.2010 | 22:09
ÁFRAM ÍBV.
ÍBV,
til hamingju með góðan sigur í Grindavík.
Það verður að segjast eins og er, að ég hefi nokkra samúð með Grindavíkurliðinu,
að þurfa að tapa leiknum, en svona er það,
" enginn er annars bróðir í leik".
Næsti leikur verður við Fylkir hérna heima á sunnudaginn og það þykir mér
ansi leitt, að ég er að fara í tveggja mánaða frí til dóttur minnar, sem býr í
Svíþjóð, þannig að ég verð fjarri góðu gamni í boltanum lungað úr sumrinu.
Enginn Keli á Hásteinsvelli með sín köll, áfram ÍBV.
ÍBV fánann ætlar hann frændi minn,Björn Ívar Karlsson að veifa á hverjum
heimaleik fyrir mig og kannski kemst hann á bragðið með að hrópa einnig,
áfram ÍBV, hver veit!
Á þennan hátt verð ég með ÍBV-liðinu í anda hvern einasta leik og mun biðja hátt og í
hljóði fyrir þeirra velgengni í allt sumar.
Sárabót er það að nú er að hefjast heimsmeistaramótið í fótboltanum og sennilega
verð ég eins duglegur og þegar síðasta móti stóð árið 2006, þegar ég horfði á alla leiki
mótsins beint, að undanskildum tveimur leikjum.
Reyndar er maður ekki svo fjarlægur því sem er að gerast eins og í íslenska
fótboltanum, því fréttir og lýsing er á mbl.is þannig að maður getur vel verið með á
nótunum.
En,
ekkert kemur samt í staðinn fyrir það, að standa við Hásteinsvöllinn og
veifa ÍBV-fánanum og hrópa,
áfram ÍBV, áfram ÍBV, áfram ÍBV.
![]() |
Eyjamenn of sterkir fyrir Grindavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 22:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.6.2010 | 17:02
Á SJÓ FYRIR RÚMLEGA HÁLFRI ÖLD SÍÐAN.
Til hamingju sjómenn með daginn.
Það er nú þannig, að þrátt fyrir að ég sé fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum,
þá fer frekar lítið fyrir sjómennsku í lífi mínu.
Annað en hann langafi minn frá Landakoti, sem réri við sama keip í ein 40 ár á
áraskipinu Gedion og þá lengst af með Hannesi lóðs,
sem skipstjóra.
Ég væri að skrökva því, að segja að ég hafi ekki unnið fyrir mér til sjós,
Því árið 1958, þegar ég var fimmtán ára fór ég norður á síld með Sigurði Ögmundssyni
frá Litlalandi á Ísleifi lll.
Galvaskur Keli árið 1958.
Éf ég man rétt þá var aflinn eftir tveggja mánaða úthald, 14oo mál og tunnur og
þótti nú ekki mikil veiði.
Þetta var nokkuð erfitt fyrir 15 ára ungling, en hringnót var notuð og var ansi
erfitt að tosa nótinni inn.
Nokkrir af áhöfn Ísleifs lll í sgrúðgarði þeirra Akureyringa. Frá vinstri,
Hreinn Pálsson Happastöðum, Jón Ögmundsson
Litlalandi, Sigurður Ögmundsson Litlalandi, og
Þorgils frá Fagurhól.
Lífið um borð var frekar einhæft og lítið um að vera, nema þegar út á miðin var komið.
Þannig, að einn skipverjinn sem var þetta sumar á Ísleifi hélt uppi húmornum,
eins og sagt er.
Marinó Sigurbjörnsson grínari.
Eitt af því sem ég gerði á þessu úthaldi,
var að ég drakk mig dauðadrukkinn og því miður hefur sá ósiður loðað við mig síðan.
Árið 1988 átti ég kost á að fara í siglingu og var það með góðum vini mínum
Ólafi Erni Kristjánssyni, sem þá var yfirvélstjóri á flutningaskipinu,
Hvalvíkin.
Ég var ráðinn sem maskínumaður og varði þetta úthald í þrjá mánuði 1988.
Nokkrir af áhöfn Hvalvíkurinnar á sjómannadag árið 1988.
Við félagarni fremstir Óli til vinstri og Keli til hægri.
Þessi sigling var eins og ég segi í dag, sigling í kjölfar hennar Tyrkja-Guddu.
Við fórum um borð í Hvalvíkina á Eskifirði og sigldum sem leið lá til Alsír.
Borg, sem er aðeins innar í botni miðjararhafsins, borgar sem heitir Skikda.
Farmurinn var loðnumél í stóru sekkjunum.
Keli í vélarrúmi Hvalvíkurinnar.
Þannig að ég get sagt, að ég hafi "migið í saltan sjó".
Kannski mun ég gera þessari sjómennsku minni ítarlegri skil,
en það bíður betri tíma.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.6.2010 | 21:02
HIN GLÆSTA VON SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS ?
Að heita Guðlaugur Þór, eða Gísli Marteinn í dag er ekkert spaug, en blessaðir
strákar mínir látið það ekki trufla ykkar sterku hlið, að gera betur en allir aðrir í,
að styrkja sig sjálfan.
Þetta er ekkert annað en öfund annarra, þegar þið, sem eruð "sverð og skjöldur"
flokksins og bjartasta von okkar íslendinga á komandi tímum, þegar þið náið slíkum
árngri til styrktar ykkar góðu hugsjónum.
Látið ekki deigan síga fyrir rætnum tungum, herðið upp hugann og haldið endilega
áfram að starfa fyrir "flokkinn" og aulana sem geta ekki státað af glæstum sigrum
sem þið,
í prófkjörskosningum fyrri ára.
Ég bið ykkur drengir mínir þess lengstra orða, sitjið á strák ykkar og segið ekki af
ykkur í næstu framtíð.
Í lokin sendi ég,
sem er aðeins "armur maður" ykkur til styrktar og hvatningar
hérna smá kveðling eftir
Ólaf H. Símonarson:
Ég fæ það sem ég á skilið.
Ég á skilið það sem ég fæ.
Ég skil ekki það sem ég fæ.
Ég fæ það einfaldlega.
Þess vegna hlýt ég að eiga það skilið
af því ég fæ það.
Ég skil ekki
hvers vegna aðrir fá það ekki líka.
Það hlýtur að vera af því að þeir
eiga það ekki skilið.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.6.2010 | 17:47
TVEIR ÓLÍKIR BORGARSTJÓRAR ?
Þegar núverandi borgarstjóri Reykjavíkur settist í þann ágæta stól,
var almannarómur sá að hann-hún væri með afbrigðum spör á brosið og
og barasta leiðinleg.
Svo gerðist það sem fáir bjuggust við, að mikill viðsnúningur varð á framkomu allri,
og auðvitað þeim myndum sem teknar voru, sem sýndu nú allt aðra hlið á
borgarstjóranum.
Því hann-hún birtist ekki svo, okkur landsmönnum en skælbrosandi, ljúf og viðfelldin,
að virtist.
Þessvegna er það stóra spurningin, hvort að væntanlegur borgarstjóri,
sem þykir nokkuð skemmtilegur og ljúfur að sjá,
muni "turnast" og verða með afbrigðum leiðinlegur og spar á brosið.
Spennandi verður að fylgjast með framvindu mála?
![]() |
Jón Gnarr verður borgarstjóri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.5.2010 | 21:39
AÐ VERA LANG- BESTI FLOKKURINN.
Jæja,
nú eru bæjarstjórnarkosningarnar að baki og eftir því sem manni skilst
af formönnum flokkanna, þá eru bara allir sigurvegarar og í sjáfum sé litlu við það
að bæta hjá þeim.
Frá mínum sjónarhóli, sýnist mér fólk vera hvað helst að senda vinstra settinu
gula spjaldið.
Krafan er auðvitað sú frá fólkinu,
að þrátt fyrir að félagi Steingrímur tönnlist sí og æ á hruninu og hvað allt sé erfitt
hjá honum með það sem þau fengu upp í fangið frá íhaldinu og framsókn,
þá er það ekki lengur marktæk
afsökun hjá skötuhjúum stjórnarinnar,
að björgunin sé handan hornsins,
því fókið barasta trúir því ekki lengur.
Þar af leiðir,
hefur flótti brostið á í liði vinstri manna og þeir eru svo sannarlega
taparar í þessum kosningum.
Hérna í Eyjum halda sjálfstæðismenn meirihluta sínum og geta nánast gert það sem
þeim sýnist og því miður hafa þeir verið sakaðir um að vera of neikvæðir gagnvart
því sem aðrir hafa lagt til málana.
Þess vegna er það ráð mitt til þeirra, svo og fulltrúa V-listans,
að kynna sér eins og þeir kalla það hjá Besta flokknum;
aðgerðaáætlun Besta flokksins: Allskonar fyrir Reykjavík!
Til þess að festast ekki í skýjaborgum og sigurvímu, að kosningum loknum
skora ég áfulltrúa sjálfstæðisflokksins hérna í Eyjum, að kynna sér það sem Bf hefur
fest á blað,
því þá eiga þeir mikla möguleika,
við næstu bæjarstjórnarkosningar,
árið 2014.
Það var góð lexían,
sem hann Guðmundur Steingrímsson framsóknarmaður sendi formanni sínum í dag
og mætti formaður sjálfstæðisflokksins einnig af því læra.
En Guðmundur sagði Sigmund formann sinn, bæði einstrengilegan og tillitslausan,
sem væri með nefið uppi í skýjunum og í engum tengslum við fólkið í landinu,
þessvegna hefðu framsóknarmenn ekki riðið feitum hesti frá þessum kosningum.
Það er einmitt þannig líka, sem ég túlka kosningaúrslitin,
að pólitíkusarnir eru á annarri bylgjulengd og stunda það að
vera með innantóma frasa og leiðinlegheit, sem enginn nennirað hlusta á, eða þá að
fólk nær engum þræði í því sem þeir eru að segja.
Það var einmitt andhverfa þessa, sem Bf sýndi af sé í þessum kosningum,
þessvegna er hann sigurvegarinn.
Dægurmál | Breytt 31.5.2010 kl. 09:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.5.2010 | 14:41
D-LISTINN Í VESTMANNAEYJUM ER FALLINN ?
Nú nú, hvað er nú á seiði þarna í Eyjum í dag?
Enn og aftur hefur Sjálfstæðisflokkurinn tvo njósnara í kjördeildum hér á
kosningadag.
Þegar ég mætti á kjörstað til að kjósa áðan,
sátu velþekktar konur úr flokksstarfi íhaldsins hér í dag,
sem höfðu það hlutverk að merkja við þá sem komu til að kjósa.
Ég bað þessar ágætu konur að víkja frá meðan ég neytti kosningaréttar míns og
og gerðu þær það góðfúslega.
En, satt best að segja "brá mér nokkuð í brún" , þegar inn var komið til að kjósa, því
það var ekki nóg að þessar prúðbúnu og nytsömu sakleysingjar væru með sínar
spjaldskrár frá þeim í Ásgarði,
heldur sátu þrjár myndarlegar konur við háborðið,
sem voru þarna fulltrúar kjörstjórnar og svo sem ekkert nema gott um þær að segja,
nema það að ein af þeim var í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn í síðustu
bæjarstjórnarkosningum og svo önnur sem er mágkona Elliða bæjarstjóra.
Og hvað var það sem flaug í gegnum huga mér,
hér vantaði ekkert í þessa mynd annað en það, að bæjarsjórinn sjálfur sæti á milli
kvennanna tveggja úr kjörstjórninni og þannig
vel getað ímyndað mér að ég væri mættur þarna í Ásgarð,
félagsheimili Sjálfstæðisflokksins hér í bæ til þess að taka þátt í prófkjöri flokksins.
Því segi ég það,
að Sjálfstæðisflokkurinn hér í Eyjum er kolfallinn
í mínum huga og hefur með sínum persónunjósnum algjörlega fallið á
því siðgæðisprófi, sem við kjósendur gerum til
flokkanna sem eru í framboði hérna í dag.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Þorkell Rúnar Sigurjónsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
ibvfan
-
fosterinn
-
maggibraga
-
solir
-
georg
-
gretaro
-
sigthora
-
kjartanvido
-
eyglohardar
-
rustikus
-
svenko
-
eyjapeyji
-
kokkurinn
-
valdivest
-
disin
-
smarijokull
-
kristleifur
-
gudnihjoll
-
sjonsson
-
nautabaninn
-
prakkarinn
-
bergen
-
icekeiko
-
asthildurcesil
-
joiragnars
-
hallarut
-
annabjo
-
jensgud
-
jonaa
-
svarthamar
-
kaffi
-
stormsker
-
olinathorv
-
zunzilla
-
gbo
-
steinibriem
-
siggith
-
ea
-
svanurg
-
tannibowie
-
valdimarjohannesson
-
martasmarta
-
gullfoss
-
elnino
-
sunna2
-
thjodarskutan
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.7.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar